apríl 26, 2006
Hæ hæ
Um helgina seinustu tókum við Fannar bílaleigubíl og lögðum snemma af stað til Orlando. Við keyrðum í um 4 klst. í bongó blíðu og létum eins og asnar alla leiðina:)
Planið var að fara og hitta Eyjó pabba hanns, tvö yngri systkini og svo Gústa bróðir Eyjó og hans fjölskyldu. Eyjó hafði leigt stórt hótelherbergi undir alla.
Það var vel tekið á móti okkur. Við byrjuðum á því að fara öll út að borða. Það var tivoli bakvið veitingastaðinn og krakkarnir vildu ólmir fara. Við sögðum ekki nei við því sko! Enda fórum í nokkur tæki sjálf:)
Næsta dag vöknuðum við extra snemma (ok um níu...híhí) og lögðum af stað til Disney World. Þegar við vorum komin innum hliðið, fórum við í lest sem liggur yfir í garðinn. Ég var eins og mesta smábarn, fannst allt svo flott!! Benti á allt og var með risa augu allan tíma. Ég er ekki frá því að Fannar hafi skammast sín smá fyrir mig... híhíhí
Við fórum í allskonar tæki. Fórum fyrst í vatns rússíbana. Það var farið í gegnum helli og þar voru allskonar fígúrur og tónlist undir. Svo þeyttist maður niður brekkur og blotnaði... við Alexandra systir Fannars sátum saman og öskruðum eins og við áttum lífið að leysa:)
Svo dró ég Fannar og Brynjar bróðir hans með mér í húsið hennar Mínu mús. Maður labbar inní það, allt bleikt og GEÐVEIKT flott. Mig langaði að flytja inn! Við kíktum svo yfir í húsið hans Mikka og hittum kallinn.
Þegar fór að dimma kom skrúðgangan. Upplýstir vagnar drógu Mikka, Litlu hafmeyjuna, grísina þrjá og alla hina um garðinn. Rosalega flott! Okkur Brynjari langaði samt að nota tækifærið meðan tækin voru tóm og hlupum að vatnsrússíbananum og fórum eina ferð, alein í tækinu:) Þegar við ætluðum að fara til baka þá týndumst við. Hvernig tínir maður KASTALA!?!?!?! Við löbbuðum heillengi og fundum loks Fannar. Þá var fyrri skrúðgangan búin og flugeldasýningin að byrja. Þetta var flottasta flugeldasýning sem ég hef nokkru sinnum séð!! Kastalinn var allur upplýstur og flugeldunum skotið bak við hann í takt við disney lögin:)
Eftir það fórum við að leita af restinni af hópnum. Við fundum þau og horfðum með þeim á skrúðgönguna seinni. Það var ROSALEGA flott!! Þarna sat Cindarella með prinsinum sínum í hvítum upplýstum vagni og veifuðu beint fyrir framan okkur!! Maður gapti bara! ... Eða kannski bara ég, sem var mesta smábarnið þarna:)
Næsta dag fórum við í Universal Studio og Island of Adventure. Eyjó bauð okkur ÖLLUM! Ekkert smá næs:) Hann keypti líka svona "speed pass" svo maður þyrfti ekki að bíða í 2 klst.löngum röðum heldur fórum bara framfyrir:) Þannig náði maður að fara í sem flest tækin:) Við fórum í Hulk rússíbanan sem er GEÐVEIKUR!, nálina (sem btw SKAUT manni fyrst upp og ég hélt ég myndi í alvöru deyja hehe, Jurassic Park, Spiderman og margt fl! Í Universal hjóluðum við með ET vini mínum, hittum drápsvélmennin úr Turminator og ég varð smá hrædd... bara PÍNU sko! Svo sáum við Jaws, það var nú ekkert hræðilegt enda tugi ára gamalt. En sígilt og gaman.
Við skemmtum okkur endalaust vel yfir helgina. Ógleymanlegt alveg. Líka gaman að hitta loksins fjölskylduna hans Fannars. Eyjó var rosalega næs og maður var svo velkomin. Alexandra leiddi mann útum allt og það komu smá tár þegar við kvöddum hana. Alger dúlla.
En ég set inn myndir sem fyrst, tókum endalaust margar!
ps. Fannar er byrjaður að skrifa aftur.... kíkið á síðuna hans:
Fannare.blogspot.com
Bæbæ



posted @ 4/26/2006 06:59:00 e.h.