mars 28, 2006
Nýjar myndir komnar til hægri... :)
Nú fer loksins að líða að því að sundlaugin okkar verði opnuð... ég get varla beðið eftir því að getað farið í sólbað á sundlaugarbakkanum og kæla sig svo ofan í lauginni. Ógillega kósý:) Það er meira að segja engar pöddur þar sem maður liggur, greinilega passað að allt sé hreint og fínt (mín er sko SKÍTHRÆDD við pöddur!).
Það væri reyndar skemmtilegra að hafa einhvern með sér þar sem Fannar minn er ekkert OF hrifinn af því að flatmaga í sólbaði:)
Í fyrradag fórum við yfir til Gumma og Lindsey. Meðan strákarnir spiluðu Fifa og Mario kart í RISA sjónvarpinu þeirra ásamt því að hella í sig bjór, þá vorum við Lindsey að ganga frá þvotti inní herberginu þeirra. Hún gaf mér peysu og buxur sem hún passaði ekki í:) og við spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Við fórum samt líka í Super mario Bros í Nitendo tölvunni hennar... ég átti svoleiðis þegar ég var yngri(eða á einhverstaðar held ég). Uppháhalds leikurinn minn! Vá hvað ég ætla að fara að grafa tölvuna mína upp þegar ég kem heim!
En í gær vöknuðum við frekar seint (það var nú einusinni sunnudagur:) ) og fórum út að skokka. Við skokkuðum í kringum vatnið sem er í 20 mínútna göngufjarlægð héðan. Það er rosalega flott þar, nokkrir gosbrunnar og svo er hægt að ganga inn að því miðju og sitja þar með nesti eða eitthvað:) Svo ákváðum við að horfa á hundleiðinlega mynd til að reyna að sofna sem fyrst *róttækar aðferðir í gangi* .... þurftum að vakna SNEMMA (vöknuðum um hád.*lallalala*) til að fara í skólana.
Okkur tókst allavegana að ná fyrir lokun í dag:). Mike kom og fór með okkur. Fyrst fórum við í FSU og fengum allar upplýsingar um hvernig á að sækja um, hvaða gögn ég þarf og fl. Þar næst fórum við í Aveda snyrtiskólann. Ég ætlaði að athuga með förðunarnámskeið þar, en þau voru BARA með húð og hár, en ég gæti farið í TVEGGJA DAGA námskeið í förðun! Það hjálpar mér nákvæmlega ekkert :)
Ótrúlega asnalegt þar sem þau tala mikið um "make up" á síðunni sinni. But that's life....
Við enduðum svo á því að fara í TCC (Tallahassee community collage) og fengum líka upplýsingar frá þeim. Fannar ætlar neflilega að byrja í þeim skóla, taka fyrstu tvö árin og flytja sig svo yfir í FSU sem er mun betri skóli.
Ég hinsvegar er BARA vandamál.
Nú þarf ég að fara að taka TOEFL prófið...
...sækja um að fá einingarnar mínar úr FG metnar hjá einhverri stofnun sem rukkar mig morðfjár fyrir að gera það (get ekki einusinni sótt um háskóla fyrren það kemur því ég þarf að vita HVAR ég stend hérna)...
...Sækja um og taka S.A.T sem er inntökupróf í skólana (en KANNSKI þarf ég ekki að taka það, ef ég fæ 60 credit/einingar metnar frá FG þá þarf ég það ekki)...
...sækja um Student-visa þegar ég er viss um að hafa öll gögn rétt og komin inní skóla, konan sem við töluðum við í TCC sagði að ég þarf að vera að koma INN í landið til að "virkja" visa þegar ég fæ það. Annað eins bull hef ég aldrei heyrt! Svo ég þarf kannski að koma til Íslands í sumar (líka því ég má bara vera hérna í 3 mánuði núna, sem rennur úr 2.júlí)...
...bíða eftir að fá svar frá snyrtiskólanum (búin að bíða endalaust lengi) því ég get ekki byrjað í sumar í háskólanum og ætlaði að taka snyrtifræðina sem eru bara 4-5 mánuðir... það væri ágætist byrjun til að komast betur inní enskuna og aðstæður.
Svo það GÆTI verið að ég þyrfti að koma heim í sumar... Fannar var reyndar að stinga uppá því að skella sér til Bahamas fyrir 100 dollara til að geta sagt að ég sé að KOMA inn í landið... eins heimskulegt og það hljómar þá væri það lúxus að fara til BAHAMAS:)
Ææa ég vildi bara segja ykkur frá þessari steypu... bara svona því mér leiðist.
Var að enda við að klúðra Betty crocker köku...... hvernig í ÓSKUPUNUM fer maður að því með allar þessar leiðbeiningar!?!?!
Núna fór ég eftir ÖLLUM leiðbeiningunum (ekkert olíubragð í þetta skiptið, húrra ég) en samt var hún harðari en grjót!
**Halla þú steinþegir!!:) ;) **
Fannar er að horfa á Dumb og dumber, vona að hann fatti það ekki *híhíhíhí*
En ég er komin með krampa í puttana...
Fallega fólkið
biður
að heilsa:
posted @ 3/28/2006 04:56:00 f.h.