myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 13, 2006



Loksins komin með internetið!! jibbí

Við erum komin með íbúðina og erum að klára að innrétta hana og gera fína. Við keyptum sófasett af einhverri síðu sem er fyrir nemendur í bænum, svona nokkurskonar skiptimarkaður því fólkið sem býr hérna er hér bara meðan það er að mennta sig. Akkurat núna er Fannar og Mike vinur hans að setja saman fallega eldhúsborðið okkar og stólana sem við keyptum í dag:) Rosa gaman:P Svo eldaði ég áðan fyrir okkur... damn maður er orðinn svo STÓR!

Við erum eiginlega bara búin að vera að stússast síðan við komum, redda hinu og þessu. Lindsey og Gummi eru búin að vera æði. Keyra okkur útum allt og hjálpa okkur. Eitt skiptið vorum við Lindsey í búð og hún sá stelpur vera að selja svona "girl scout cookies" og keypti heilan KASSA af þeim. (Halla manstu þegar Ross var að selja svona kökur fyrir litlu stelpuna sem hann slasaði, en Monica keypti alla! hehehehehe)

Við höfum reyndar líka farið út nokkrusinnum á skemmtistaðina hér, og svo fórum við öll plús Esther vinkona Lindsey á road-trip og ætluðum að tjekka á strönd sem er um klukkutíma í burtu. Það var reyndar ekkert rosalegt, en ágæt samt. Það er náttúrulega enn vetur svo vonandi verður maður búinn að finna flotta strönd fyrir sumarið :=) Við skemmtum okkur samt sem áður vel. Keyptum snakk og bjór og sátum þarna og höfðum það gott... sumir reyndar *hóst*Fannar og Gummi*hóst brunnu "smá" en ekkert hættulegt:) Við Lindsey og Esther gengum svo næstum alla strandlengjuna og söfnuðum skeljum og svoleiðis dóteríi. Ég fann svo krossfisk og er að þurrka hann. (Ætla sko að skreyta baðherbergið mitt flott!). Lindsey er að vinna hjá veisluþjónustu og hún fór með okkur í einhvern garð þar sem hún var að sjá um brúðkaup í einhverjum dögum áður og það var ekkert smá fallegt!! Ég tók helling af myndum:)

Það er reyndar einn STÓR galli við ameríku... það er allt svo helv*** ódýrt í matvörubúðunum og þau hafa BESTA súkkulaði ís í heimi og ég er búin að borða allavegana 5 dollur, og þær eru ekki litlar! Ég er að fara að skokka úti reglulega (ef ég nenni... hehe) og jafnvel kaupa mér kort í ræktina... hef reyndar ekki séð neina... en ég dreg allavegana Fannar með mér út að skokka í góða veðrinu. Núna er tæplega 20 stiga hiti úti á daginn svo það er mjög þægilegt.

Fjölskyldan mín sendi mér myndir af sér sem ég ætla að prenta út og ramma inn. Svo ef einhver á mynd af sér sem má fara uppá vegg hjá mér þá endilega senda mér svo ég gleymi nú ekki hvernig þið lítið út... híhí!

Svo er ég að setja myndir inn sem ættu að koma fljótlega í albúmið mitt:)Ég læt fylgja nokkrar neðst. Efsta er tekin rétt áðan þegar Fannar setti saman borðið, ein á ströndinni, ein í GEÐVEIKA garðinum og fl...
En ég þarf að fara að hjálpa strákunum, læt heyra í mér fljótlega:)









posted @ 3/13/2006 03:18:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu