myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 17, 2006





Kveðja frá Flóró:)


Ég ætlaði bara aðeins að láta vita af mér.
Ég fór í viðtal hjá North Florida cosmetology school sem gekk bara vel:) Konan sagði mér að ég væri velkomin um leið og ég er búin að redda mér Student Visa, sem gæti tekið nokkrar vikur. Skólinn byrjar samt 4.apríl og ég verð þá á þriðjudögum til laugardaga frá 9-17 í 4-5 mánuði. Ég þarf að klára 500 klukkustundir og stór hluti af því er að fá kúnna til mín og setja neglur eða make-up á þá og svo held ég að þeir gefa manni líka einkunn. Þetta er frekar strangur skóli, hurðin lokar á slaginu 9, svo það þýðir ekki að koma of seint, og einnig verð ég alltaf að vera snyrtileg, annars gæti ég verið send heim! Svo eru nokkur skrifleg próf, en vonandi rúllar maður þessu upp:)

Ég sendi mail á sendiráðið í gærkvöldi þar sem ég bullaði eitthvað til að fá sent frá þeim skjöl til að fylla út. Þeir eru rosalega strangir á þessu öllu saman. Ég mátti td. alls ekki minnast á það að ég væri að koma hingar til að fara í skóla. Heldur að ég hafi verið hérna í heimsókn og svo bara alltí einu hafi langað í skóla... svoldið heimskulegt. En ég vona að þetta gangi allt upp.

En Fannar er að fara að vinna hjá Lindsey (kærustu Gumma bróðir hans) næstu tvær vikur svo ég verð bara að finna mér eitthvað til að dunda við (sem er nú ekki erfitt, tvö mall rétt hjá *lallalala*).
Hann verður reyndar svo bara í hlutastarfi hjá Lindsey eftir þetta, en er að leita sér að fullu starfi.

Vonandi hafa allir það gott heima og ég bið að heilsa öllum:)

Bæjó, Maggalaggalá:**


posted @ 3/17/2006 10:07:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu