mars 25, 2006
Það hefur lítið gerst hjá mér seinustu daga. Við erum bara að stússast í hinu og þessu. Ég fór uppí skólann um daginn til að fá pappíra frá þeim fyrir student visa og þá segir önnur kona en sú sem ég fór í viðtal við, að þau hafa ekki AÐSTÖÐU fyrir útlendinga!! Ég bara "come again", og hún segist ekki hafa neina pappíra til að láta mig hafa, því það kostar eitthvað fyrir skólann að taka að sér útlendinga (sem ég skil ekki alveg) en þau ætluðu að hafa samband við yfirvöld og ath málið. Svo ég þarf bara að bíða enn lengur. Ég ætla líka að fara í Aveda snyrtiskólann og ath málin þar. Annars skellir maður sér bara beint í háskóla nám:) Ég hef verið að skoða innanhúsarkítektina og ætla að fara til námsráðgjafa að kanna málið betur. Gummi bróðir Fannars sagði að ég gæti sennilega fengið metið eitthvað úr FG, vinur hans fékk víst 2 ár metin til B.A prófs. Sem er svoldið flott:) Ég blikka bara augunum og sleiki prófessorana upp... híhíhí
Fannar er að vinna stöku sinnum hjá Lindsey... á meðan ligg ég bara á sundlaugabakkanum í sólbaði:D Laugin opnar samt ekki officially fyrren eftir viku eða svo. Við erum líka byrjuð að fara út að skokka. Rosalega stolt af því:D Við löbbuðum líka í 3 KLUKKUTÍMA í gær!!! Ætluðum í Publix (matvörubúð) til að leysa út tjekka sem Fannar fékk fyrir vinnuna sína en þau tóku ekki við honum svo við löbbuðum ENN lengra í aðra búð, en gáfumst upp því við vorum komin í "the hood" og okkur var orðið kallt *hóst*skíthrædd*hóst*:) Þetta er sko gettoið í Tallahassee... ógeðslega sleezy hverfi, vantar ljósastaura útum allt svo það var niðamyrkur og húsin voru eins og í bíómyndunum.... anyways... við löbbuðum í 3 tíma og ég er ógeðslega stolt af því:D Það er líka ágætt því þá sér maður bæinn betur. Við fundum stöðuvatn, sem er svona ekta útivistarsvæði sem við ætlum að skokka kringum eins oft og við getum:)
Áðan fórum við Fannar og vorum að redda okkur símanúmerum, svo við verðum komin með nr.sem fyrst, ég set það á síðuna mína. Svo kom Mike vinur Fannars og við fórum í Hollywood video að leyja spólur.
Ég ætla að fara að horfa með þeim, þeir sem lesa þetta VERÐA að kommenta svo ég viti nú að fólk er að lesa:P ... algert möst;)
Bæbæ Mag's:**
posted @ 3/25/2006 05:28:00 f.h.