janúar 19, 2006
Hvað er þetta með mig og bíla???
Ég virðist með engu móti getað verið eigandi bíls nema hann sé eitthvað í hakki!
Eins og kunnugt er þá var bíllinn minn klesstur og ég fékk nýjan. Þessi nýji þykist eitthvað vera rafmagnslaus af og til, þótt hann sé ný búinn í viðgerð! Ég fór áðan með Önnu Helgu í Kringluna og þegar við vorum búnar fór hann ekkert í gang helvítið. (össs ég blóta bara þegar ég er SVONA reið:) ) Mundi kallinn kom og bjargaði okkur og ætlaði að gefa mér rafmagn... en nei, það hentaði ekki bílnum mínum sem eflaust vildi bara vera lengur í kringlunni svo við skildum hann eftir..... arrgggg
Ég get huggað mig við það að ég er komin í vikufrí frá hótelinu... jibbííí!
... reyndar að vinna uppa sólbaðstofu fös, lau, sun OG mán... en maður er víst að safna:S
Svo mér til mikillar skemmtunnar var mér boðið að leika í nýjasta myndbandi uppáhalds-söngvara míns og idols...honum Geir Ólafs! Já nei ég helt nú ekki....
Ég sit hérna heima hjá mér og vorkenni mér bílleysið... það er eins og ég sé fótalaus...
Nota tækifærið til að skrifa diska og taka til í herberginu mínu, ekki veitir af:)
Farin að þrífa, bæjó...
posted @ 1/19/2006 05:11:00 e.h.