myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

janúar 01, 2006



GLEÐILEGT ÁR!

Jaháá... bara komið 2006 og engir fljúgandi bílar eða vélmenni!!
Jæja ég skemmti mér allavegana konunglega í gær:)
Við fjölskyldan borðuðum saman ásamt ömmu, afa, Lalla, Óla og Fannari.
Svo spiluðum við krakkarnir þangað til brennan byrjaði. Við systurnar og Fannar náðum í Andra og svo var farið á brennuna. Þar hittum við Þórhöllu og Viktor í góðum gír:)
Hann Krissi vinur Fannars kom og horfði með okkur á skaupið, sem var ekkert spes að mínu mati! Einum of stutt:(
Þeir félagar gerðu svo alla SKÍTHRÆDDA og klúðruðu köku... það var ýkt fyndið! Kakan datt á hliðina og skaust í áttina að okkur, nokkrusinnum og sprakk alltaf á fólkið! Shit hvað allir urðu hræddir og hlupu inní bílskúr! hehehehehe
Þetta minnir mig á það sem kom fyrir í fyrra, en þá skaut pabbi rauðri sól minnir mig en hún beigði yfir öxlina á honum og beint inní bílskúr sem stóð í ljósum rauðum logum. Það kviknaði í hillunni og allt varð sótsvart, svo ekki sé talað um allan reykinn sem lagði út frá bílskúrnum! Já óheppnin eltir fjölskylduna mína:)

Eftir lætin fórum við inn í hlýjuna og fengu okkur heitt kakó, en skiptum fljótt yfir í rauðvín og osta;) mmmmmm
Ferðinni var heitið til hennar Elmu í partý. Þar var slatti af fólki sem maður þekkti. Helga, ég og Fannar kíktum aðeins í partý í bænum hjá vinum Stebba, en þar voru bara slagsmál og læti svo við flúðum það og fórum heim að lúlla.

Ég setti ekkert áramótaheit, hef reyndar aldrei gert. Markmiðið er aðallega að njóta lífsins og vera prúð og góð:P híhíhí

Bæbæ


posted @ 1/01/2006 10:50:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu