janúar 24, 2006
Bíllinn kominn í lag! Vúhúúú
Fyrst reyndi Fannar og nágranni hans að gefa honum start, þar næst kom Heiðar Austmann að gefa start, en ekkert virkaði.....
Það var ekki fyrr en frændi hans (Fannars, ekki Heiðars) kom af bifreiðaverkstæðinu sínu og kippti einum litlum vír í lag, þá allt í einu var allt í gúddí:).... já eða næstum því... við vorum BENSÍNLAUS í þokkabót. Við þurftum að labba lengst út í **** og ná í bensín því enginn gat komið að bjarga okkur.
En ég hef allavegana tekið gleði mína á ný og fagnaði með því að fara í Sautján og fá mér nokkra sumarboli fyrir Florida:)
Svo er önnur leiðindasaga.... (got plenty.. hehe)... ég MISSTI af staffapartýinu sem var á laugardaginn sökum veikinda. VÁ hvað ég var pirruð þá! Fekk samt blóm þegar beibið mitt kom úr vinnunni:)
Svo vil ég deila því með ykkur að klukkan er 10 að morgni og ég er í FRÍI... já ég er vöknuð fyrir allar aldir OG búin að fara í sturtu og borða! Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir:)
En nördinn í mér heimtaði að henda inn færslu svo hér sit ég ein inni eldhúsi að skrifa... fer samt á eftir að fá mér fleira stöff úr Sautján. Á enn eftir 2.500 kall af inneigninni... shit hvað maður fær mikið fyrir einn lítinn Diesel-bol!!
Æ ég er farin.... bæbæ
posted @ 1/24/2006 10:11:00 f.h.