desember 05, 2005
Sálin klikkar ekki. Það er staðreynd... ég fór á Nasa síðasta laugardagskvöld með Fannari, Alla, Stebba, Ástu, Rakel Örnu og Emmu. Það var SVOOO gaman! Maður dansaði af sér aukakílóin (I WISH!!) og fékk sér nokkra öllara. Ég kastaði "óvart" bjórglasi í punginn á tæknimanninum og það splúndraðist!! *ÁÁTTSSSS*
Það var bara eitthvað svo freistandi þar sem ég var á dansgólfinu og sá bara frá mitti og niður!!!
Anyways... Fannar er kominn í fullt starf hjá Hýsingu, sem er lager fyrir búðir eins og Top shop og fl. Við erum á fullu að spara fyrir Flórída.... já eða svona næstum því. Sumir *hóst-Fannar-hóst* KLESSTI bílinn minn svo illilega að hann er MJÖG skrambúleraður og ekki ökufær!! Grindin beyglaðist vel inn og fór í rifbeinin og hálsinn á Fannari! :O Greyjið dúllan mín! En hann er samt lifandi (annað en bíllinn!!) og allt í góðu þar. Ég get selt hann í partasölu fyrir slikk!! (bílinn sko, ekki Fannar:)) Við erum að leita okkur að nýjum og verðum vonandi komin aftur á götuna von bráðar:) (ég keyri þá sko!) hehehehe ...
Ég er að vinna *úps* svo ég verð að hætta....
posted @ 12/05/2005 10:25:00 e.h.