desember 11, 2005
Jæja þá er maður bara kominn með nýtt útlit! .... já eða svona næstum því... ég var semsagt módel fyrir hana Höllu mína sem málaði mig í svona "litadýrð". Hún er óttalega klár stelpan og á framtíðina fyrir sér í þeim bransa;)


Svo á ég alveg yndislegan kærasta... það er alveg saga til næsta bæjar skal ég segja ykkur...
Eins og ég sagði áður, þá RÚSTAÐI hann bílnum mínum og var ekki beint í uppáhaldi hjá manni akkurat á þeirri mínútu, en hann heldur betur bætti úr því. Bókstaflega LÁ á netinu í leit að bíl með samviskubit skrifað á ennið á sér! Hann fann silfurlitaða Mözdu daginn eftir og keypti hana handa mér!!! Þreif hana hátt og lágt og skipti um rúðuþurrkur. Bíllinn er bara mjög flottur og ég er hæstánægð!!:) Þetta kallast að redda málunum;)
.... Helga og Stebbi eru að fara að koma til Íslands!! Ég get ekki beðið sko! Þau koma 15.des og verða til 8.jan.... vúhúúú (",)
Bæjó
posted @ 12/11/2005 12:57:00 e.h.