myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

desember 28, 2005



Ég eeelska jólin!!

Ég fékk sko HELLING af gjöfum og var hæst ánægð með allt!
Frá mömmu og pabba fékk ég iPod nano og glas í safnið mitt, skreytt há bjórglös, frá Fannari fékk ég mosagræna nikita peysu og silfurlitaðan demantshring, systkini mín gáfu mér bronslitaða tösku og eyrnalokka... svo fékk ég fullt af flottu dóti frá vinum og ættingjum:) Takk æðislega fyrir mig:***

Ég eyddi aðfangadeginum í faðmi fjölskyldunnar. Á jóladag borðaði ég heima hjá Fannari ásamt mömmu hans, tveim bræðrum hennar og svo Viktori og Þórhöllu.
Það var mjög jólalegt fyrir utan öll homma-skotin sem tvíburarnir skutu með óþreyju á hvorn annan... *huhummmm*
Á annan í jólum náði ég í minn heittelskaða í nýju vinnuna sína, á hótel centrum. Tókum stefnuna á Selfoss í jólaboð hjá frændfólki hans. Þar hitti maður slatta af ættingjum. Meðal annars ýkt krúttlega tvíbura, aðeins 4ra mánaða! Ég var stoppuð á leðinni út þar sem ég hélt "óvart" á öðrum þeirra... neiii grín... en mig langaði samt að lauma einum í töskuna mína! Gvuuuð þeir voru dúllur!! En ég hef engar áhyggjur því þetta er sko í ættinni... maður er nú líka einusinni með eineggja tvíbura;)
Eftir kaffiboðið heimsóttum við Júlla og Hrefnu. Ég hef aldrei komið heim til þeirra og skammaðist mín svo fyrir það þar sem þau eru jú náskyld manni! Þau tóku vel á móti okkur og buðu okkur kökur og heitt kakó. Þau buðu okkur að koma áður en við flytjum út og fara á hestbak og æfa okkur að skjóta ... sem ég hef ekki gert síðan ég var lítil. Þau eru æði!
King kong fékk svo athygli okkar um kvöldið, en ég, Fannar, Helga, Stebbi og Anna Helga fórum að berja górilluna augum. Myndin er ágæt sko, þótt ég sé enginn aðdáandi. Við skelltum okkur svo á Gaukinn eftir bíó þar sem við fengum okkur sitthvorn bjórinn.

Dagurinn í dag fór í algert hangs. Ég og Fannar vorum uppí rúmi að borða snakk og pepsí ásamt tonn af "makkíntosi" mmmmmm.... núna er maður mættur á næturvaktir á fullu. Fæ nú samt frí á gamlársdag:-)

Hvert á að fara á gamlárs?? Plz látið mig vita svo ég get látið einhvern kaupa miða or som'n því ég sef jú á daginn... bæjó





posted @ 12/28/2005 08:22:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu