nóvember 28, 2005
Jólin nálgast óðfluga og ekki seinna vænna að huga að jólaföndri...*LOL*
Ég og Fannar gerðum okkur ferð út í Föndru og keyptum allt milli himins og jarðar!
Ég keypti td.jólapappír til að gera jólakort, og auðvitað helling af gylltum og silfurlituðum pappa til að skreyta ofl og kerti og helling af kertaskrauti sem ég ætla að dunda mér við búa til sæt jólakerti:) Svo erum við að sjálfsögðu í óðaönn við að búa til jóladiska til að hafa í bílnum, því það er jú ómissandi!
GUÐ HVAÐ ÉG HLAKKA TIL... rölta í snjónum (VONANDI!!!) á laugaranum og skoða í búðir og setjast svo inn og fá sér heitt kakó áður en maður heldur áfram:)
Ég er búin að kaupa samt festar jólagjafirnar en ef þið lesendur góðir eigið það eftir þá er skylda að draga mig með:) Ég verð ALDREI þreytt á búðarrápi...
ANYWAYS... ég er komin með vinnu í Stjörnusól aðra hvora helgi og svo alla mánudag. Það er barasta mjög fínt:) Svo er ég líka í Veröldinni okkar á mið og fim. En eftir áramót fer ég líka á næturvaktir uppá hóteli því Magga ætlar að verða rík og vaða í dollurum áður en hún fér út! $$$ ......
"Horfðu í augun á mér... þegar jólin koma... trallalalalaa" .... æ'etta er SVO sætt lag!!
posted @ 11/28/2005 07:01:00 e.h.