myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

nóvember 05, 2005



Jæja nú er ég loksins búin að gera myndaalbúm... almennilegt!! Endilega skoðið:)
http://maggasigga.shutterfly.com

Ég hlýt að vera eitthvað mis....
ég er að lesa NÚNA á heimasíðu mannfræðinema, “homo.blogdrive.com” að það var BJÓRKVÖLD í gær!!! Frítt djamm og ég GLEYMDI því!! Hvurslags eiginlega er þetta?
En jæja, ég er mætt allavegana í vinnuna, tók aukavakt uppá hóteli. Það er bara fínt:)
Svo er VIKUFRÍ í skólanum í næstu viku! Jeeeiijj:)
Það kallast reyndar “verkefnavika”, but who cares... ég ætla SVO að hafa það næs:)
Næsta föstudag fer ég í vísindaferð með Hauki og Þór Steinari og restinni af viðskiptafræðinni. Við ætlum að detta í það og fara svo í bæinn að hitta hótelkrakkana, en við Begga vorum að plana smá hitting fyrir Grand-djammara:) Hlakka rosa til! Alltaf stuð að hitta það lið. Seinasta sunnudag var td. smá “matarboð” hérna í vinnunni. Þá áttu allir að koma með eitthvað og svo var bara hlaðborð. Við systurnar mættum ásamt Henný... en komum ekki með neitt:S Borðuðum og fórum snemma.... daddarararaaaa......... það var rosalega flottur matur og frítt rauð-og hvítvín með. Ég komst að því seinna að Rakel og Henný voru enn í partýstuði og höfðu farið aftur uppá hótel og drukkið með fólkinu. Það var víst hörkustuð langt fram á nóttu!!

Já nú er Fannar minn kominn frá Flórída. Við Þórhalla vorum mættar uppá flugvöll til að ná í prinsana okkar. Þegar heim var komið flykktust að mér gjafirnar! Ég fékk bleikan bol, bleikan trefil, bangsa, hálsmen og eyrnalokka í stíl, 3 armbönd, 3 g-strenga og náttbuxur í stíl við þær sem hann keypti á sig. Svo hafði ég sent honum lista líka þannig að ég fékk helling af bolum, peysum, stígvélum og ég veit ekki hvað og hvað.

Í gær fór ég í bæinn með Önnu Helgu til að kaupa afmælisgjöf handa Munda en endaði með að kaupa jólagjöf handa elskunni minni:)
Svo hittumst við stelpurnar (FINALLY) á Hressó. Mættum bara snemma og fengum okkur heitt súkkulaði og eplapæ. Nennti ekki að djamma neitt þar sem ég átti að mæta 8 í morgun. Hittumst alltof sjaldan.... en nú eru aðeins 40 dagar í hana Helgu mína og Stebba kjútí:):) Get varla beðið!!!!
*Bæjó*


posted @ 11/05/2005 12:10:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu