myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

nóvember 12, 2005



Það er föstudagskvöld og Margrét situr heima hjá sér og er að BLOGGA!!
..... tjahhh það er djamm á morgun;)

Ég var að koma úr bíói með Fannari, Rakel, Emmu og Elmu. Við sáum myndina "Into the blue" og hún var alveg ágætis afþreying skal ég segja ykkur:) Það er samt ekkert gaman að sjá hana Jessicu vinkonu mína í svona endalaust góðu formi!! EEENNnnn það hvetur mann nú bara til að drattast á lappir og byrja að BRENNA!:) Ég verð nú að passa í öll flottu sumarfötin sem ég keypti mér í Ameríkunni þið vitið;)

En já, talandi um sumarföt... ástæðan fyrir því að ég vil passa í svoleiðis er sú að ég mun flytja mig yfir í sólina eftir áramót!! Ég og Fannar ætlum að yfirgefa landið og sleikja sólina á Flórída næstu mánuði... jafnvel meira:) Planið er að mæta á staðinn kringum febrúar. Pabbi Fannars getur reddað okkur hræódýrri íbúð þar sem hann er jú fasteignasali. Við ætlum að kaupa svo bíl sem fyrst og sækja svo um vinnur. Það er mall þarna rétt hjá pabba hans húsi svo ég mun þræða tískuvöruverslanir og sníkja vinnu;) híhíhí
Í sumar ætlum við að vera búin að finna okkur skóla, en mig langar í förðun og kallinum í arkítekt.
Þetta verður þrælgaman... allir að koma í heimsókn... nei bíddu... SKYLDA að koma í heimsólk!!!! Ég lofa að þið verðið ekki bitin af hákörlunum:)

Anyways... annars er ekki mikið að frétta... var að vinna í Veröldinni okkar í dag og aftur á morgun. Á morgun var svo eitthvað staffadjamm planað, en ég næ ekki í neinn:S Annars eru slatti að fara í bæinn svo maður getur tjúttað með þeim...

En ég er hætt...




posted @ 11/12/2005 01:15:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu