október 16, 2005
Við Rutta sitjum hérna uppá bókhlöðu að læra... ofsa duglegar!!!
Nema það er eitt sem er að trufla okkur..... það er creepy gæji bakvið hilluna akkurat núna að njósna um okkur!!! Ég er búin að vera að fylgjast með honum (samt ekki eins og Halla var að fylgjast með “litla stráknum” í Ólafsvík!!) og hann er bara að ÞYKJAST skoða bækur held ég. Hann GLÁPIR allavegana hingað og er ekkert að fara leynt með það nema þegar Rut lítur við þá er hann allt í einu að bara að skoða bækur! Hann kom áðan og þóttist vera að lesa bók og plantaði ser á borðið hliðiná okkur. Gaf mér creepy augnarráð og ég sýndi honum að ég gæti ælt! Nú er hann farinn og við getum loks lært í friði:)
Í gær fórum við Fannar í matarboð til Önnu og Munda. Anna er svo myndarleg að elda læri og með. Ég gerðist líka húsmóðir og bjó til tvö búðinga í eftirrétt og kom með:)
Meðan við Mundi og Anna skrældum kartöflur og gerðum allt tilbúið sat Fannar límdur við imbann.... “The Simpsons” sko!
Maturinn bragðaðist mjög vel. Eftir það fengum við okkur í glas, en Mundi fór að vinna og Anna var edrú. Við kíktum aðeins í bæinn, en það var bara stutt heimsókn. Fengum okkur pizzu á pizza king (sem eru bestu pizzur sem hægt er að fá!!) og svo var það vaffla í eftirrétt:)
Kallinn er að yfirgefa mann á morgun. Þeir tvíburar eru að fara til Miami til að halda græna kortinu sínu. Þeir eru að fara að liggja á ströndinni og svo er halloween partý í Universals studios næstu helgi!! Vá hvað mig langar með!!
En það er búið að loka bókhlöðunni... bæbæbæbæ
posted @ 10/16/2005 04:50:00 e.h.