myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

október 02, 2005



Sit hér ein uppí vinnu. Ein og yfirgefin... eða allavegana næstu tíu mínúturnar, þá kemur hin stelpan úr kaffi.
Við vorum totally sky-high hérna í gær vegna parketlagningu. Kallarnir voru að lakka það með ÓGEÐSLEGA sterku efni sem læddist uppí heilann á okkur!! Sú víma var orðin óbærileg þegar ég loksins fékk að fara heim. Á maður ekki að fá áhættu-laun or som’n
??

Um kvöldið fór ég til Höllu sem var að passa í Vesturbænum. Við pöntuðum okkur Nings sem var klukkutíma á leiðinni.... þegar hann loksins kom, var minn VIÐBJÓÐSLEGUR!! Kjötið blautt, sósan gufuð upp, gúrkurnar brúnar... jakk!!! Mín hringdi sko og lét þau heyra það og sendilinn kom með skottið milli lappana og endurgreiddi mér! *muhahahaha*

Kalli og Krissi náðu svo í mig og við fórum heim til Krissa að drekka. Kalli drakk næstum hálfan líter á no-time! Svo var bara bjallað í taxa og við fórum í bæinn þar sem Fannar var með vinnufélögum sínum.
Vonandi verðuru ekki reiður Fannar, en ég bara VERÐ að birta smsin sem þú sendir mér þegar þú ert í glasi:) :) SOOWRYY;)

Eg ep ad dyja
... á að vera: ég er að deyja!

Jem, eq ad djana med stqaj+unum”... á að vera: já ég er að djamma með strákunum! (þótt ég hafi EKKERT verið að spurja að því hehe)

Erum a pratda
”.... á að vera: erum á Pravda!

Svo er það nýjasta frá því í gær:

Eg er hna huereisbarhn, komidh
!... á að vera: Ég er inná Hverfisbarnum, komiði!

Híhíhíí... vonandi verð ég ekki lamin
*mjá*

Æ nú get ég ekki hætt... hann er svolítill prakkari hann kærastinn minn....
Við vorum í 11-11 um daginn og ákváðum að kaupa okkur eitthvað narterí. Völdum rándýrann toblerone ís og fl.nammi. Á leiðinni til baka ákveð ég að pota í ísinn og smakka hann. En OJ hvað hann var VONDUR!! Við förum til baka og Fannar hleypur inn. Segir við afgreiðslustrákinn að það sé sko búið að POTA í ísinn og við viljum NÝJANN! Kemur til baka með bros á vör og nýjan ís:)
Þetta kallast að redda sér:) hehehehehehe

Eitt svo í lokin, bara afþví að ég er kvikindi... thíhíhíííí.. en hver kallar afgreiðslukonuna sína með NAFNI?? Við vorum á American style og það var svoldið að gera. Búin að panta en sumir vildu bæta einhverju við en nær ekki athygli.... þá heyri ég hann kalla “HAFDÍS”! Ég roðna niður í tær fyrir hans hönd, en spring svo úr hlátri meðan hann skilur EKKERT hversvegna og fannst það svo eðlilegt. Þau þekkjast btw ekkert.... Æ þú ert æði ástin:** :p:p:p

Þynnkan er að drepa mig núna... ekki mitt uppáhalds að þurfa að díla við erfiða kúnna sem finnst alltof kalt eða eru búnir að týna einhverju og vera DRAUGÞUNN í þokkabót!!! Vá hvað ég sakna alltíeinu námsbókanna... væri frekar til í að vera núna að lesa í mannfræðibókunum mínum um afskekkt samfélög eða eitthvað....

Later:**


posted @ 10/02/2005 06:23:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu