október 12, 2005
Ég er komin í svo mikið jólaskap að ég er að fara yfirum..... hlusta á jólalag með Á móti sól í bílnum og farin að skoða jólaskraut!! Somebody help me!!
Við hjónakornin fórum í Bláa lónið seinustu helgi og slöppuðum þar af í tungsljósinu, endalaust rómantískt:)
Eftir það borðuðum við kvöldmat á veitingastaðnum þar:)
Á leiðinni að bílnum hittum við letta (as in Lettland)sem sagðist vera ísklifurkappi og hafði misst af rútunni í bæinn. Við erum svo góðhjörtuð að við leyfðum honum að sitja í. En allan tíman bað ég til Guðs að hann myndi ekki stinga mig í bakið eða eittvað.... ég meina, hvað veit maður??? Vondi kallinn er út um allt!
En ég var á lífi þegar við komum í bæinn og við gerðumst meira að segja það góð að skutla honum lengst inní Reykjavík, en kallinn ætlaði að LABBA frá Garðabæ!
Ég er uppá þjóðarbókhlöðu núna... á að vera að læra.... hundleiðinlegt að vera einn og sem betur fer er Rut komin heim og ætlar að vera dúleg að lesa læknisfræðina:)
...en jæja Fannar er kominn að bjarga Margréti litlu frá bókunum....
posted @ 10/12/2005 05:23:00 e.h.