september 25, 2005
Laugardagskvöld... kallinn að djamma... vinir manns sumir í útlöndum... áfengið bara heima í hillunni... ég að VINNA og ekki nóg með það, ég er að gera frikki'n ritgerð um félags-og menningarmannfræði sem verður að vera PERFECT!!
Hvers á maður að gjalda eiginlega??
En ég er samt glöð í hjarta mínu því áðan kom mamma mín frá Ameríkunni með helling af dóti handa mér:) Ég fékk ilmvatn, svartann GAP bol, svartann hlýrabol, náttbuxur, bleikann puma bol, eyrnalokka, helling af snyrtidóti og síðast en ekki síst nærfatasett úr Victoríu sem mín var hæst ánægð með:) En hún var aðalega að kaupa jólagjafir og svoleiðis dót þannig að ég þarf að bíða í 3 mánuði;)
Ég talaði við Rakel Örnu áðan og hún var bara hress út í Slóveníu. Gellan bara nýkomin af djamminu þar. Svo rétt í þessu stakk Fannar inn nefinu til að segja hæ við prinsessuna sína. Hann var reyndar kol-ölvaður kjáninn...
Allir að benda manni á hvað er gaman hjá þeim meðan ég vorkenni sjálfri mér hérna....
En jæja, best að demba sér í bækurnar... ...

posted @ 9/25/2005 02:15:00 f.h.