september 06, 2005
Æ hvað ég sakna sumarsins! :(
Þoli ekki kalda dimma vetur (fyrir utan jólin). Það er eins gott að ég hafi Fannar minn til að kúra hjá á köldum vetrarkvöldum:)
En já talandi um jólin, ég er orðin ekkert smá spennt yfir þeim *roðn* !
Það er svo kósý að rölta um laugarveginn á þorláksmessu og setjast svo inn á kaffihús til að hlýja sér með heitu súkkulaði:):)
Svo erum við að spá í að eyða áramótunum á Miami hjá fjölskyldunni hans Fannars. Það verður æði ef við látum verða af því. Enginn snjór, bara hiti og pálmatré og partý á ströndinni:)
Keyrandi um göturnar á blæjubíl og njóta lífsins! Úúú ég fæ nettan hroll....
En frammundan hjá mér er bara skólinn... JÁ ÉG SAGÐI SKÓLINN!
Eins niðurdrepandi og það hljómar... ég búin að vera í bókafríi í ár, svo allt í einu skellur það allt á aftur:(
Ég hætti í Uppeldis-og menntunarfræði með Önnu minni, og fór yfir í Mannfræði. Sem mér finnst miklu skemmtilegra. Reyndar er það MIKLU meira lesefni og verkefni, en þá er bara málið að drullast til að LÆRA HEIMA! daddaraaaa
Ég er með Brynju frænku minni sem er um þrítugt í tímum. Þekki hana reyndar voða lítið, en hún og mamma eru systkynabörn. Gott að þekkja einhvern þegar maður er lítil feimin stelpa eins ogég :)
Á laugardaginn er svo auðvitað grillpartýið hjá okkur stelpunum.... er komin endanleg niðurstaða hvort það verður í Heiðmörk eða heimahúsi??
Seinna um kvöldið fer ég svo í afmæli hjá Elmu og þá verður hattaþema... vúhúúú.
Er ekki málið að koma í bæinn um kvöldið?? Plz :p
posted @ 9/06/2005 04:03:00 f.h.