september 19, 2005
Ég held það sé kominn tími á smá línu… ekki það að ég hafi eitthvað merkilegt að segja sosum :P
´
Endilega skoðið myndirnar úr afmælinu: http://holluafmaeli.shutterfly.com/action//
En í fyrradag fór ég í afmæli til hennar Höllu minnar. Það var rosa gaman að hitta allt gamla gengið loksins:) Það var spjallað, hlegið, dansað… ójá það var DANSAÐ!! Minnti mig óendanlega mikið á taktana sem Pheope notar þegar hún fer út að hlaupa… en það er önnur ella. Svo fór ég á Nasa á ball með hinni einu sönnu Sálinni. Það var OF gaman þar! Við Heiða tróðum okkur að sjálfsögðu fremst og Heiða fékk að snerta goðið sitt…. Sem er nú ekki neitt þar sem hún hefur klipið í rassinn á honum og kysst hann á kinnina áður… HEIÐA ÞÓ!! :o
Við krúttparið tókum okkur svo til um daginn og keyptum brauð og forum að gefa öndunum í Grasagarðinum. Sátum þar á bekk fyrir framan litla tjörn og fuglarnir komu og sníktu af okkur. Svo röltuðum við í gegnum garðinn og settumst inná kaffi Flóru og fengum okkur heitt kakó og íspinna. Aawww dúllur við:)
En annars er það bara skólinn og aftur skólin…. Hef einu sinni hitt Önnu Helgu uppá bókhlöðu, en þá talaði hún meira en allur saumaklúbburinn hennar mömmu til samans. En seriously, við VERÐUM að fara oftar og læra saman… LÆRA saman Anna ;)
posted @ 9/19/2005 05:21:00 f.h.