ágúst 16, 2005
Við Halla komum heim 5.ágúst. Helga og Stebbi voru yndislegir gestgjafar. Gerðu allt fyrir okkur!
Takk æðislega fyrir mig *knús-knús* !!
Í Amsterdam gerðum við heilan helling. Við löbbuðum út um allt þarna, skoðuðum Dam-Squere, fórum í "Maddam-Tusseou" (or som'n) vaxmyndasafnið, Bátsferð og bara name it....
Þegar við vorum á flugvellinum, búnar að bíða í kílómetralangri röð fullar tilhlökkunar um að komast heim.... þá er okkur tilkynnt að vélin sé FULL!!! Við bara "come again???" ...
En já við sáum fram á það að þurfa að taka næstu vél sem var BTW kl.22:10!!!
Við komum okkur þægilega fyrir á BurgerKing... kannski OF þægilega *huhummm*
Við acctually SÁTUM á rassinum þar í 7 og 1/2 tíma... SJÖ OG HÁLFAN TAKK FYRIR!!
Við vorum orðar dofnar í fótunum og okkur leið eins og það væri kominn nýr dagur þegar við loks stóðum upp.
Við tjekkuðum okkur inn og biðum við ganginn. LOKSINS á heimleið:)
Í flugvélinni héngum við í tölvunni og gerðum okkur líka að fíflum (æ það fylgir alltaf)....
Þegar við lentum og vorum að bíða eftir töskunum okkar, kom í ljós að þær voru bara ekkert með okkur.... heldur urðu þær eftir á Schiphol!!
Ég hélt ég yrði ekki eldri!! Átti að fara í sumarbústað daginn eftir og ALLT dótið mitt í Amsterdam! Við náðum einhvervegin að halda niður í okkur öskrinu og löbbuðum í gegnum tollinn.
Það fyrsta sem ég sá þegar ég kom út var Fannar:) Hann kom og náði í okkur dúllan.
Um morguninn næsta dag fékk ég sms frá Höllu og hún sagði að töskurnar væru KOMNAR heim til sín. Ég varð ekkert smá fegin.
Náði í hana og svo var farið uppí bústað.
Fannar og Viktor voru að halda uppá afmælið sitt. Við fórum í heitapottinn og höfðum kósý og svo var hörkupartý um kvöldið.
Annars hef ég ekki verið að gera NEITT af viti síðan ég kom heim. Er jú að vinna í núna næturvakt, en það er bara auka. Ég er eiginlega hætt, sumarfrí. Er bara búin að vera að sofa út og leika mér. Fannar er búinn að "búa" heima hjá mér meðan familían er í veiðiferð. Það er óttalega kósý:) Svo bauð hann mér á Café Operu 9.ágúst, óttalegt krútt!:)
Nú er menningarnótt frammundan og Heiða beibí að koma heim svo það verður örugglega fjör á laugardaginn... vonandi halda allir meðvitund og endist út djammið *trallalalala*
posted @ 8/16/2005 09:33:00 e.h.