myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

ágúst 29, 2005



Sumarið er tíminn...

... já eða ekki...

Ég var nýkomin í sumarskap þegar ég frétti að SKÓLINN sé að fara að byrja
!!
Varð ekki mikið vör við sólskin þar sem ég var annaðhvort á næturvöktum eða í útlöndum :S Hmmm....

Á menningarnótt fór ég með Fannari, Krissa og Hauki í bæinn. Við byrjuðum á því að bruna uppí Perlu til að ná flugeldasýningunni. Þegar við stigum út úr bílnum byrjaði að HELLIRIGNA svo við tókum bara góða U-beygju og beint aftur inní bíl. Brunuðum til baka og náðum í jakka á strákana, en ég hafði séð sóma minn í að koma með ÚLPU:)
Við drifum okkur svo á Pravda þar sem Fannar hellti mig blindfulla. Þar hitti ég Heiðu og Elmu, en Heiða beibí er búin að vera í útlöndum í ALLT SUMAR! Fyrst var það Þýskaland, svo Danmörk og þar næst Flórída!! Við tókum nokkur tryllt spor á gólfinu eins og okkur einum er lagið
:)

Annars er ég bara búin að vera að gera “ekki neitt” síðan ég kom heim. Tek aukavaktir annaðslagið uppá Grand. Annars er ég í sumarfríi.
Ég er búin að vera veik seinustu daga. Samt tókst mér að djamma fim, fös OG lau :S

Svo á ég sætasta kærastann í öllum heiminum. Ég er búin að vera lasin seinustu daga og Fannar kom heim í hádegishléinu og vakti sjúklinginn með kossi og blómum :) Gerist það betra
??


posted @ 8/29/2005 12:06:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu