júlí 23, 2005
Við Halla erum nú loksins búnar að bóka flug og hótel og plana ferðina!
Verðum hjá Helgu og Stebba í viku. Heiða Karen er víst stödd þarna af eihverjum ástæðum svo maður hittir skvísuna pottþétt eitthvað... tökum kannski gamla “Portúgal-takta” :) Svo fljúgum við til Rotterdam viku seinna og skellum okkur til Amsterdam þaðan. Þorum ekki til London... skíthræddar við að verða sprengdar sko... já eða SKOTNAR af löggunum! Ég get neflilega verið svolítið grunsamleg stundum;)
Svo verð ég bara að segja frá því að ég vann Fannar í pool...... AGAIN!!:)
Við kíktum svo í Nauthólfsvíkina. Þar voru Ásta og Kalli kærastinn hennar.
GLAMPANDI sól og voða kósý... en Fannar þurfti að fara að vinna svo gamanið stóð ekki lengi:p
Ég að missa af Sálarballi sem er í kvöld!! MAGGA AÐ MISSA AF SÁLARBALLI!! ... ekki orð um það meir.... too pissed....
Gaurarnir sem eru að vinna að nýjustu Clint Eastwood myndinni gista hérna. Þeir voru að segja okkur frá því að leikararnir eru væntanlegir til landsins 8 ágúst. Þar á meðal Ryan Phillippe:) Það skemmtilega er að þeir gista kannski hérna hótelinu!! Við Bragi sem vinnur með mér ætlum sko að hemta áritun;) Þessir gaurar sem eru hérna núna þeir unnu líka að myndinni “Millian dollar baby” sem mér finnst barasta rosa töff!
posted @ 7/23/2005 09:50:00 e.h.