júlí 13, 2005
Sælar....
Damn... síðasta helgi var craaazyy!
Fór í kveðjupartý hjá Helgu og Stebba. Þau kvöddu reyndar strax í upphafi kvölds þar sem löggimann ætlaði að taka greyið Stebba... úr hans EIGIN partýi!!!
Ég er að segja það sko... sá Stefán Pétur ÖFURÖLVA í fyrsta skiptið! Maðurinn sem getur drukkið endalaust fékk LOKSINS nóg:)
Í gær grilluðum við Halla og Anna Helga saman og tókum mynd. Það var óttalega kósý hjá okkur. Anna er svo mikil húsmóðir að hún bara tók allt að sér... eins og vanalega:)
.....Anna... ef þú heldur þessu áfram þá verður þetta svona ALLTAF! Við erum að verða gjörsamlega ósjálfbjarga!
Í dag kom Halla svo með þessar hræðilegu fréttir. Hún missti allt hárið þegar hún var að setja í þvottavélina!!
.........Nei ekki alveg svona hræðilegt... en hún sagði mér að það væri bara allt fullt til Ameríku sinnar en kom með hugmynd um að við gætum skellt okkur til Kúpu í staðinn:)
En sá draumur varði ekki lengi. Stelpan hringir í mig aftur og segir að það sé ekki hægt heldur! Mér var ekkert farið að litast á blikuna þegar hún segir að við gætum skellt okkur til Köben og heimsótt Helgu og Stebba:) Já og farið í tivolíið auðvitað... og svo flogið til Parísar og farið í Disney World:) Líka verslað í taxfría bænum í Þýskalandi við landamæri Danmerkur. Svo er það líka draumur að kíkja til Amsterdam og kannski KANNSKI Volendam;) .... Mar á víst “kunningja” þar sko! :)
En við erum allavegana á þeirri skoðun að EITTHVAÐ verður gert. Hvað vitum við ekki en spennan magnast ógurlega... fylgist með næsta þætti ....... STAY TUNE!
.... úúúúú...
posted @ 7/13/2005 09:42:00 e.h.