júlí 08, 2005
Jáhá... þið segið það!
Ég skellti mér til Grænlands á miðvikudaginn ásamt Höllu, Báru mömmu hennar, Brynju og Tobba (kærastanum). Vélin fór um tíuleytið í loftið og flugið tók tvo tíma.
Útsýnið var alveg rosalegt yfir Grænlandi. Allt kristaltært. Blár sjór, hvítir ísjakar með ljósgrænu í kring og svo auðvitað fjöllin.
Við lentum í Kulusuk og þar tóku menn á móti okkur til að fara með okkur uppá Grænlandsjökul í hundasleðaferð. Þetta voru bara við og eldri amerísk hjón. Inní flugstöð hékk óboðinn gestur..... ísbjörn sem hafði örugglega ekki nennt að reka á ísjaka og ætlað að taka flugið í staðinn. Hann var skotinn af starfsmönnunum í móttökunni og hengdur uppá vegg!!
En við byrjuðum á því að fara á tveim bátum yfir fjörðinn. Leiðin lá uppá GRÆNLANDSJÖKUL í hundasleðaferð:)
Sigldum milli ísjakana og komum að jöklinum þar sem hundarnir biðu. Bára og Tobbi voru HEILLENGI að drösla amerísku hjónunum upp jökulinn. Konan veik í hnéinu og tók hana heila eilífð að MJAKAST upp brekkuna sem tókst samt að lokum... piff...
Greyið dýrin voru bundin þarna uppá jökli alein og yfirgefin og vældu eins og þau ættu lífið að leysa! Inúítarnir (eru þeir ekki kallaðir það??) fóru að losa hundana sem voru horaðir og óttalega ræfilslegir. Þegar þeir hlíddu ekki strax þá var bara sparkað í andlitin á þeim takk fyrir!!
Halla mín er svo mikill dýravinur og felldi nokkur vorkunnartár. Meira að segja ÉG vorkenndi þeim alveg rosalega! Þeim var raðað á sleðana, ca 8 hundum á hvorn. Kallarnir tóku á það ráð að BINDA annan framfótinn á nokkrum upp í fatla, sem við skildum ekki alveg til hvers!?!?!?
En ekki nóg með það, heldur drógu þeir allavegana 300 kíló saman. 8 LITLIR HUNDAR!! Það var rosalegur klaki fyrst, og erfilega gekk að draga okkur.... við sárvorkenndum hundunum og sögðum að þetta væri orðið gott! Þá snerum við bara við og sigldum til baka.
Við fórum í land í Kulusuk. Landslagið endalaust hálent, og húsin sum standa á 4 fótum því ekki er slétt undirlag. Ég, verslunarsjúklingurinn ákvað að skoða í EINU búðina í þorpinu. Ég hefði betur getað sparað draumórana mína um verslunarleiðangur þar sem þarna var bara gúmmístígvel, áfengi og RIFFLAR! Jáhá.... ekki nema von að sjálfsmorðstíðnin þarna er MJÖG HÁ!!! Ekkert að gerast í bænum, litlir krakkar með sígarettur, fólk hangir bara fyrir utan húsið sitt og drekkur.... svo ekki sé talað um kirkjugarðinn... svið fyrstu sýn virðist sem fólk sé jarðað þar sem það dettur niður dautt! En það er víst svo erfitt að grafa holu vegna frosts í jörðinni, að þau grafa rétt ofaní og svo er það bara hent steinum yfir líkið, troðinn hvítur kross og toppað með GERVIblómum. Svona er þetta allstaðar... sumir krossarnir eru bara fyrir utan húsið hjá fólki. Nályktin er ógeðsleg.... og ekki skárri lyktin af ruslinu sem liggur út um allt!!
Á heimleiðinni fengum við útsýnisflug og okkur sagt frá stöðum. Við sáum að það liggur ENGINN vegur frá kulusuk!! Fólkið verður greinilega bara að sigla til Nuuk eða nærliggjandi staða! Þetta er vegna þess að landið er svo rosalega hálent. Einnig er erfitt að hafa flugvelli þarna þar sem finnst ekki nógu slétt land.
En þrátt fyrir hundapyntingar, sóðaskap og nálykt... þá er þetta örugglega með þeim fallegustu stöðum í heimi!!
Svo er auðvitað ekki að spyrja að því að við skemmtum okkur konunglega... ég meina, þetta erum við Halla!!! ;) The two little weirdo’s!!
-M-
posted @ 7/08/2005 04:06:00 e.h.