júlí 04, 2005
How u doing??
Tjahm... hvað er maður EKKI búinn að gera af sér síðustu daga:S
Ég fór með litla túristanum mínum, henni Önnu Helgu í hvalaskoðun á Hafsúlunni á miðvikudaginn seinasta. Byrjuðum reyndar á því að fara að skoða Árbæjarsafn áður, en það er hernaðarleyndarmál!
Við tókum að sjálfsögðu myndir eins og sönnum túristum sæmir. Ég er ekki frá því að Anna var spenntari en allir útlendingarnir þarna til samans! Um leið og konan sagði að hvalur væri sjáanlegur, var Anna fyrst mætt á svæðið með risa augu!
Daginn eftir fórum við Helga í river rafting. Það var líka rosa stuð. Tveir gæjar komu og náðu í okkur uppá hótel og við fengum far hjá þeim. Þegar við komum að Hvítá, héldum við prinsessurnar að við yrðum ekki eldri!! Okkur var troðið í ÓGEÐSLEGAR þröngar buxur, peysu og VIÐBJÓÐSLEGA skó sem lyktuðu HRÆÐILEGA vegna raka. Við pjattrófurnar hörkuðum það af okkur og skelltum okkur á bát. Það var ofsa fjör. Við vorum þær einu sem þorðum ekki að stökkva af 4m klett (sem mér finnst nú bara EKKERT fyndið!) og við blotnuðum eiginlega ekkert:)
Þegar við komum í land þurftum við að bíða eftir gaurunum til að skutla okkur heim. Þeir gáfu okkur franskar og við sátum þarna hlægjandi af þeim. Tókum nokkrar “módelmyndir” meðan gaurarnir fengu sér bjór. Sem betur fer varð einn edrú og okkur keyrt heim með Megas í botni... *áts*
Svo kom nú loksins “fyrsta helgin í júlí”. Ég, Halla og Anna stukkum uppí bíl og hentumst til Ólafsvíkur í einum grænum nánast fyrirvaralaust. Fyrst komum við aðeins við uppá Krumshólum. Þar var fimmtugsafmæli hjá frænda Höllu og allir ættingjarnir saman komnir þar.
Þegar við vorum að fara, þá var fröken Magga beðin að fara út að opna hliðið. Ég stekk af stað og opna það. Hleypi svo bílnum út, loka aftur og rembast við að læsa því. Tók alveg nokkrar mínútur sko. Þegar ég er alveg að verða búin þá lít ég upp og sé stelpurnar þarna GRENJANDI úr hlátri. Þá tók ég eftir því að ég var óvart HINUMEGIN við hliðið!!! Svo leit ég bak við mig, þá voru ættingjar Höllu þar í risa stórum glugga og sáu þetta LÍKA!! Ég var ekki lengi að opna frikki'n hliðið, loka því og hendast uppí bíl!!
Ég spyr nú samt: hver er það vitlaus að láta MIG fara út "in the first place"?!?
En jæja... okkur var boðið að gista í garði á Ólafsvík hjá fólki sem Halla þekkir eitthvað. Höfðum aðgang að klósetti og svona. Fyrsta kvöldið vorum við bara 3 eitthvað að rölta... enda ekki komnar þangað fyrren um miðnætti. Það voru tónleikar úti og við hittum helling af skemmtilegu fólki.
Næsta dag fórum við til móðursystur Höllu. Þar fórum við í sturtu og máluðum okkur ofsa sætar. Svo komu Helga og Stebbi. Þau voru ekki fyrr búin að leggja bílnum, þegar þau voru komin með hvítvín í hönd. Stebbi með pempíuglas meðan Helga drakk af stút! Þau eru sko rosa fyndin þau tvö:)
Við fórum á pizzastað og átum á okkur gat. Þar kynntumst við “fátæktinni” í Ólafsvík. Lítill strákur SAT fyrir fólki og hirti alla þá afganga sem hann komst í. Svo SELDI Stebbi greyið stráknum pizzusneiðar fyrir örfáar krónur. Mér fannst það endalaust fyndið.
Næst fórum við á bar á einhverju hóteli þarna. Anna var með RISA bakpoka undir allt áfengið OKKAR! Æ hún er svo mikið yndi...
En þar var sko setið og skálað. Óli, Ómar, Árni og fl vinir Stebba komu síðan og fjölmenntu. Við röltuðum eitthvert út, enduðum á Í svörtum fötum balli. Halla og Anna sneru við og fengu endurgreitt þar sem Helga komst fyrst ekkert inn vegna “aldurs”! Stelpan er komin langt yfir 22 ára aldurinn!! Þeir trúðu henni ekki þótt hún var með skilríki. Helga, “tíkóið” var greinilega ekki að gera sig... hehehehe!
Við Óli týndum ÖLLUM strax, dönsuðum eins og brjálæðingar við tónlistina. Þeir spiluðu sem BETUR FER ekki mikið af eigin tónlist. Tóku marga góða slagara. Á leiðnni út hittum við svo Helgu og Stebba. Röltuðum uppá tjaldsvæði og þá var farið að “sofa”.
Þetta var ÆÐISLEG ferð... rosa skemmtileg með skemmtilegu fólki. Takk fyrir mig krakkar! Voðalega á maður eftir að sakna Helgu og Stebba *tár*. En það verður alveg jafn gaman hjá okkur hinum líka! Ruttan var auðvitað ekki með í þetta skiptið og fleiri furðufuglar:)
En jamm og já... ég er hætt....
posted @ 7/04/2005 09:01:00 e.h.