júlí 21, 2005
Æ afhverju er fólk svona mikið krútt?:)
JetX-flugmaður kom til mín áðan og spurði hvað ég héti og hvort ég drykki vín! Hann heimtaði að fá að gefa mér svoleiðis í þakkarskyni því ég náði í föt fyrir hann á Hótel Smára fyrir nokkrum dögum. Það var hið minsta mál fyrir mig þar sem ég bý næstum hliðiná! En hann kom, krúttið, eldri maður, smá krumpaður og svona og vildi endilega fá að gefa mér þakkargjöf því hann sagðist aldrei muna gleyma því hvað ég gerði fyrir hann! Þetta fannst mér stórmerkilegt:)
En shit hvað japanir eru að gera mig klikkaða. Baða sig á GÓLFINU og kvarta yfir því að geta ekki sofið því sólin sest ekki.
HVAÐ Á GREYJIÐ ÉG AÐ GERA Í ÞEIM MÁLUM???
Fara og ÝTA henni niður??
Magga calm down...
Já heimurinn er skrýtinn... ég var að tala við Jan hollending og sagði honum að snoop hafi verið með tónleika á Íslandi. Hann bara átti ekki til ord... “Snoop did Iceland!!!” Ég bara JÁ SÓ! Þá hélt hann að við hefðum enga aðstöðu fyrir tónleikahald... bara tæní land sem EKKERT gerist á... ég varð að sjálfsögðu sármóðguð!
Halla við VERÐUM að bóka flugin og hótelin SEM FYRST!
Halla... HVERT ERUM VIÐ AÐ FARA???*Hórur og hassbrownies*Við stoppum sem betur fer bara í 3 nætur í þessari sóðaborg!
posted @ 7/21/2005 06:21:00 f.h.