myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

júní 23, 2005



Sól sól skín á mig...

Ég skellti mér í sund kl. hálf 9 í gærmorgun!! Spáiði í því
!
Var reyndar á næturvöktum svo ég get ekki sagt að ég hafi vaknað svona snemma... mér fannst bara hreinlega svik við sólina ef ég færi beint uppí rúm að sofa í þessu blíðskaparveðri. Ég skutlaðist heim, náði í sunddótið mitt og vakti Halldóru (hey, maður nennir nú ekki EINN í sund!!) svo lögðum við af stað uppí Árbæjarlaug. Þar lagðist ég í barndóm og lék mér eins og hálfviti... við fórum í körfu, eltingarleik og héngum á einhverju risa dóti með tilheyrandi áhorfi gamla fólksins sem var þarna á “æfingu”.

Eftir sundið gaf ég litla kvikindinu ís eins og góðum stórusystrum sæmir. Þegar við komum heim spurði hún mig hvað klukkan væri og ég segi tíu. Hún fékk vægt pirringskast yfir því hvað ég hafi vakið hana SNEMMA! ... doldið seint að kvarta yfir því... en já, svo skellti maður sér uppí rúm og sofnar.... eða alveg þangað til að HINNI litlu systir dettur í hug að læsa sig úti. Þá er að sjálfsögðu bara málið að LIGGJA á dyrabjöllunni og NEGLA í gluggann hjá mér....í allavegana korter!!
Það er ekkert jafn óþolandi og þegar "ungfrú Háhæð 8" nennir ekki að
hafa lykil á sér..... Ég hreytti í hana nokkur ófögur orð og hræðileg svipbrigði svo vonandi hugsar hún sig tvisvar um næst þegar hún yfirgefur húsið
!

Helgin seinasta fór bara í djamm djamm og aftur djamm... já og meira djamm....
Ýmislegt sem maður hefði átt að láta ógert... GJÖRSAMLEGA SKO!! Þið sem voruð með mér vitið hvað ég meina, en skuluð ekkert vera að tjá ykkur um það hér.. ehmm... PLÍS!:)

Svo er það bara þarnæsta helgi sem ég hlakka obboslega mikið til. Er að vinna næstu sko... en fyrstu helgina í júlí bara VERÐUR að vera ferðalag!! Verkfræðinemar eru víst að “bjóða” öðrum nemendum með eitthvert út á land.... Ruttan var að segja mér frá því, en spurning hvað maður gerir. Langar ROSA ROSA í útileigu:) Leggjum höfuðið í bleyti og komum okkur saman um eitthvað svakalegt!
Hmmm... hætt í bili.....


posted @ 6/23/2005 02:03:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu