júní 03, 2005
Myndir úr bústaðnum komnar hér til hægri!
Já veðrið hefur ekki svikið nokkurn einasta mann undanfarna daga. Mín vaknaði eldhress á miðvikudaginn og fór út áð skokka-EIN!! Klukkan var rétt skriðin yfir níu. Gjafir og heillaóskir eru vel þegnar:)
Skellti mér svo með Rakel Örnu í bæinn og svo í sund. Það var yndislegt að liggja þarna í sólbaði.
Um hálf sex leytið hitti ég svo Höllu og Jónas við Ingólfshól. Kynnisferðir voru að bjóða starfsmönnum söluskrifstofa og hótela að kynna sér ferðina. Við settumst aftast í rútu, svona rauða London rútu á tveim hæðum. Fengum head-sett og skemmtum okkur konunglega við að hlusta á útskýringar á bænum á hinu ýmsu tugumálum:-)
Þegar enski gaurinn sagði “Leifur the lucky” þá hélt ég að mínir dagar væru taldir!!
Eftir þessa “ógleymalegu” ferð þá stoppuðum við hjá Hafsúlunni. Það er hvalaskoðunarskip sem bauð okkur að koma enn hring með sér. En við ákváðum frekar að fara heim og ná í bjór og gera laga okkur til fyrir Kaffi Rvk. Þegar við mætum þangað þá eru bara allir orðnir vel í því. Þá hafði víst allt verið fljótandi í bjór á skipinu!
Við setjumst við lítið sætt 4ra manna borð. Það var hlaðborð með allskonar flottheitum... já og líka mjög skrítnum mat. Þarna var maður sem gekk á milli og passaði að allir væru með nóg í hvítvínsglösunum sínum. Við vorum ansi dugleg að passa að það vantaði ALLTAF hjá okkur:) Eftir matinn röltuðum við útí bíl til Höllu, sem var að keyra okkur greyið. En ég toga þá í Jónas og við skellum okkur á barinn því mín mundi að það var verið að bjóða líka koníak:-)
Svo skelltum við okkur í keilu. Mig minnir að ég hafi skít-tapað:( En þar sem ég er vanur tapari þá tók ég það nú ekki mikið nærri mér:)
Við tókum nokkrar myndir eins og sannir túristar og lifðum okkur þannig inní ferðina.
Í gær kíktum við Rakel svo á Grafarvogslaug. Sólin var nú ekkert að sýna sig neitt of mikið, en samt fékk Magga þetta svakalega bikinífar OG far á löppina eftir hlev**** lykilinn! Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.
Eftir sundferðina fórum við Anna Helga í Kringluna. Stelpan gerðist það frökk að versla fyrir 30.000 kall!! Við Halla eigum reyndar metið í að versla föt fyrir sitthvorn 70.000 kallinn í EINNI VERSLUN, en Anna Helga fylgir fast á eftir:-)
Ég er núna að hangsa eftir Önnu Helgu. Stelpan er búin að vinna kl. 14 og þá förum við eitthvað að útréttast. Þurfum að koma við í mjólkurbúðinni því það er víst afmæli hjá tveim skvísum á Pravda í kvöld:-)
Svo fattaði ég mér til mikillar skelfingar að fresturinn til að sækja um háskólann rennur út um helgina! Þá hættir letivinnu-lífið og alvaran tekur við.
Halla fékk síðan inngöngu í leiklistarskóla í Los Angeles! Mér langar ekkert SMÁ að flækjast með og fara í förðunarskóla þarna!! Hvað á Mahna að gera??
EENNN ...ég er farin út í sólbað meðan ég get ... bæjó
posted @ 6/03/2005 12:13:00 e.h.