júní 16, 2005
Já gott fólk það er ekki neitt merkilegt að frétta af mér eins og þykir víst óttalega algengt... fór jú að versla með ömmu gömlu þarna um daginn, svaka fjör. Amma var að velja sér bol í Debenhams og svo fékk ég það verkefni að velja varalit á skvísuna. Valdi fallegan ljósbrúnan gloss, en sú gamla þóttist ekki vera nógu "ung" fyrir svoleiðis glimmerí... tsss.. þá valdi ég nú bara sætann brúnann varalit í staðinn... já og naglalakk;)
Gvöð hvað hún er mikil PÆJA hún amma mín!!
Ég ákvað að halda FAST um mína buddu til að eiga fyrir fíneríi útá Flódída.
Endaði samt með því að kaupa mér maskara og peysu... *usss* !!! Hún amma gat skoðað ENDALAUST í pæjubúðum eins og Ice in a bucket og Isis... mikið rosalega er ég fegin að vita hvar ég fékk "shopping genin"... var farin að halda að sumir væru ættleiddir!!
Við amma eigum sko líka helling annað sameiginlegt sko... höfum þann ómetanlega hæfileika að geta EKKI borðað nema hella niður á okkur, erum sólgnar í súkkulaði og erum með ofnæmi fyrir hárinu á okkur... VERÐUM að vera fínar og sætar um hárið....annars er dagurinn ónýtur!
Talandi um deit... Anna mín er the most wanted girl in Iceland... það las ég allavegana í einhverju slúðurblaði!
Gellan sást með einhverjum óþekktum manni.. MANNI sko, eldri strákur svona, á Kaffi Aroma. Ég fór þangað ásamt Helgu og Rachel Green... sminkunni skiljiði...
Ég labba voða pen inn... þegar ég sé Önnu ekki segi ég pirruð :”ohhh ég sé hana ekki” !!! Nei nei.. situr mín ekki BEINT fyrir framan mig og segir frekar fúl “SÆL MARGRÉT” ..... Ég brosti bara sólheimabrosi og settist eins langt frá þeim og ég gat.
Þegar við löbbuðum út í bíl, koms ég, ljóskan í dulargervinu, að ég hafði LÆST helv lyklinum inní bílnum!!! Lykillinn var þarna bara í gúddí fíling í lyklaraufinni á sínum stað.... starði þarna á mig, hálfvitann og ég er ekki frá því að ég heyrði lágt fliss innúr bílnum... gat samt hafa verið stelpurnar sem grenjuðu þarna bakvið mig..!!!
Rakel hringdi í Ingvar (sem hatar mig núna) og hann kemur með back up og þeir reyna að pikka lásinn upp. Enda vanir bifvélavirkjar á ferðinni..... eða hvað....?? Ekki tókst þeim ætlunarverkið, svo heppilega vildi til að Anna var á heimleið líka og skutlaðist með mig að ná í aukalykilinn:) Við vorum reyndar búnar að ÖSKRA eins og við áttum lífið að leysa á hana að KYSSA GÆJANN þegar hún kvaddi hann, en sem betur fer heyrði hún ekkert í okkur svo við vorum enn vinkonur. Annars hefði hún aldrei keyrt mig!!
En nú er málið að hætta að nördast og fara að VINNA!! Það er jú það sem þeir eru að borga manni fyrir skiljiði!!
posted @ 6/16/2005 05:10:00 e.h.