júní 10, 2005
Ég skellti mér á fótboltaleik á miðvikudaginn. Ó já ég er að segja satt...!!!!
Við Anna skutluðumst fyrst til til Ruttu í Domus Medica. Þar ætlaði svísan að vera búin um sex en við sátum þarna í klukkutíma á biðstofunni. En það var bara fjör. Lásum 5 ára gamalt séð og heyrt blað og svona.
Skelltum okkur á Nonnabita og svo beinustu leið á völlinn. Leikurinn var kominn þónokkuð áleiðis en við skemmtum okkur hið besta þarna:)
Eftir leikinn fengum við okkur (ekki allar samt því sumir voru að keyra bílinn MINN, híhíhí)
Rakel Arna slóst í lið með okkur og stuttu seinna nokkrir liðsmenn. Þeir sögðust ætla hitta okkur á Glaumbar.
Þar var manni boðinn bjór. Færðum okkur því næst yfir á Viktor. Þar var ágætlega drukkið. Mikið hlegið af lélégasta fótboltaliði Evrópu *bwahahaha*
Nenntum ekki að vera lengur þarna og skutluðum þeim uppá hótel. Þar gaf Kevin mér treyjuna sína:) Ég var himinlifandi alveg þangað til ég fattaði að hún er hvort eð ekkert merkt!! Bara venjuleg treyja með helling af svitalykt!! Fyrirliðinn hafði fengið að eiga treyjuna hans Eiðs... við urðum rosa abbó.
Í gær kíktum við Anna Helga svo á Öddu og Rakel á kaffihús. Mér tókst að halda mig frá öllum kertum ásamt Séð og heyrt blöðum svo engin slys urðu í þetta skiptið;)
Svo fórum við til Helgu í vinnuna. Hún tók þessar fínustu passamyndir af okkur og gaf. Rosa góð:)
En þá var komið af bíói. Sáum Monster in-law. Mæli með henni fyrir allar STELPUR:)
Rakel litla systir hringdi svo í mig og bað mig að koma með sér á Hverfis. Mér fannst það vægast sagt MJÖG gruggugt.
Þegar við komum á staðinn, þá kom uppúr krafsinu að litla systir dró stóru systur með á “deit”.... það var ekkert smá skondið!!
En já meðan ég man....hvernig er planið fyrir 17 júní helgina???
posted @ 6/10/2005 05:27:00 e.h.