júní 07, 2005
Ég þarf víst að skrifa eitthvað handa Höllu og hinum sorglegu internet-vinnu-hangsurunum sem eru í svipaðri vinnu og ég svo þær hreinlega DEYJI ekki á lyklaborðinu.
Helgin var hin ágætasta. Kristín og Adda padda héldu uppá afmælið sitt á föstudaginn. Hittingur fyrst hjá Höllu. Anna Helga var svona korteri á undan mér, en þegar ég kom þangað þá hafði stelpan drukkið marga lítra af vodga OG fl. Hvernig sem henni tókst það þá varð hún blindafull á met-tíma.
Á Pravda týndi Rutta jakkanum sínum svo gellan ákvað að hefna sín á ÖLLUM staðnum í staðin. Tók ALLA jakkana af fatahenginu og fór með þá inná skrifstofu!! Anna Helga kyssti mann og annan. (Ég á nærmynd af henni og Höllu by the way sem ég mun nota til að múta þeim með í framtíðinni! )
Fólkið þarna var VÆGAST sagt MJÖG drukkið. Davíð var orðinn það vel í því að hann gat með engu móti gengið hjálparlaust um gólfin. Hann mjakaði sér einhvernvegin meðfram veggjunum!!
Á sunnudaginn skelltum við Kristin, Anna og Rutta okkur á Nings... mmmmm....
Hámuðum í okkur vel og lengi. Kíktum aðeins í smáralind eftir það.
Um kvöldið fórum við á Kaffi Borg. Þar gerðist svolítið sem ENGINN má vita nema fólkið sem sat á næsta borði og hló sig máttlaust:(
....... oohhh ok ég skal deila því með ykkur...
Ég var í sakleysi mínu að skoða séð og heyrt blað. Sé eitthvað grípandi frétt og þegar ég ætlaði að fara að sýna Kristinu, þá hallaði ég ÓVART blaðinu ofan í kertastjakann! Blaðið stóð þarna í ljósum logum í höndunum á mér og ég fattaði ekkert fyrren Kristín öskrar á mig og hristir blaðið:(
En lítum á björtu hliðarnar... ég hef eflaust skemmt þó nokkrum sem sátu þarna í einmannaleika sínum:)
Jamm og já...........það er óttalega næs að hangsa svona í vinnunni inni í rigningunni-á launum:)
Rakel Arna kíkti á mig í dag. Skvísan var að farða strákana uppá stöð 2.
Þegar hún kom sat landslið Möltu í sófanum á móti deskinu og GLÁPTU á greyið Rakel!
Til að útsklýra aðeins hvernig þessir menn haga sér hérna þá skal ég sko segja ykkur það að í gær sátu þeir allir í göllunum sínum á leiðinni á æfingu, blikkandi mig eins og þeir áttu lífið að leysa. Á leiðinni út SLEIKTI einn dúddinn ÚTUM!!! Ég varð ýkt hrædd og gargaði á samstarfskonu mína sem kom fram og gaf þeim illt auga:-)
Svo núna rétt áðan kom þessi væmni gúmmítöffari niður og sagðist hafa læst sig úti. Ég bara ohhh dísus. Þrammaði með honum uppá herbergi. Ég hefði heldur betur átt að sjá í gegnum þetta því allt FRIKKI’N LIÐIÐ stóð þarna á ganginum og einn rífur strax í mig og dregur mig inní herbergi! Svo opnuðu hinir og fara að spjalla við mann. Einn þeirra gerðist svo djarfur að biðja mig um að bjóða þeim í partý eftir leikinn!! Hvað er málið. Vita þeir ekki að þetta er 4ra stjörnu hótel og ég er STARFSMAÐUR!!
En þjálfarinn þeirra er að minsta kosti næs. Hann kom og rétti MÉR 8 miða á leikinn!:)
Við Halla og Anna Helga ætlum að skella okkur saman. Gallinn er bara sá að við við fengum sæti möltu-megin. Við erum reyndar komnar með þessa fínustu lausn. Málum andlitið á okkur RAUTT, í þeirra lit, svo við verðum óþekkjanlegar og höfum bjór í hendinni;)
Ég læt svo fylgja með mynd af litla stockerinum mínum, gúmmítöffaranum fyrrnefnda sem "læsti" sig úti. Ef þið verðið vör við hann, takið STÓRAN krók og reynið að forðast eftir bestu getu! Bæjó!
posted @ 6/07/2005 04:06:00 e.h.