Your Boobies' Names Are: Twin Peaks
Já þetta er hreinn sannleikur. Brjóstin á mér heita þessu nafni ef marka má þessa síðu: http://www.blogthings.comFinnið út ykkar nöfn og deilið því með okkur hinum:)
Tvær vaktir eftir þá er mín komin í laaanggttt frí! Vúhúúú!
Ég (elsta barnið í fjölskyldunni) mun þá eyða ófáum stundum á risa trapmolíninu okkar útí garði. Mér er alveg sama þótt nágrannarnir hlæja af 22 ára hlunkinum sem skoppar þarna... vill einhver hoppa memmér??!! :-) *híhíhíhí*
Það verður stuð hjá okkur í sumar. Grill og bjór í góða veðrinu útá palli og svo hoppað eins og brjálæðingar... bannað að kasta upp!
Rakel systir var að frumsýna í Loftkastalanum í kvöld og stóð sig frábærlega að sögn Rakelar Örnu sem er að sminka þær. Enda er skvísan hörku dansari.
Til hamingju litla systir *mwaaah*
Það hefur gripið um sig bílaæði meðal fólks sem ég þekki. Óli frændi kom hérna áðan uppá hótel á nýja bílnum sínum, benz ’98. Með topplúgu og læti. Flottur bíll. Hann tók svo uppáhalds frænku sína á rúntinn:)
Mútta og pabbi fengu leið á GLÆNÝJA bílnum sínum, sem kom beint úr kassanum fyrir örfáum vikum. Í staðinn fengu þau sér Toyota Landcruser, sem er einnig glænýr! Hulda er komin á nýjan bíl. Svo er Halla mín að fara að endurnýja líka............... ÉG VIL LÍKA!
Getur einhver sagt mér hvar þið tínið þessa peninga??
Ég er með einhverja fantasíu í hausnum á mér um að flytja ÚT í ákveðinn tíma. Fara í skóla eða gera EITTHVAÐ!
Einhver sem langar með mér? plz! :)
Manni finnst maður eldast svo hratt og vill njóta lífsins til hins ítrasta áður en maður fer að ugna út börnum og þannig fullorðinshlutum. Þótt manni hlakkar rosa til:)
Annars er ekki mikið í fréttum af mér og mínum.
Anna Helga er þessa dagana á tindinum;) Gellan bara með stórt bros á vörunum. En það er hernaðarleyndarmál hvað veldur þessari óstöðvandi vellíðan;);)
Halla er komin með nýjan loverboy. Úllalla!! Á samt eftir að vinna hann á sitt band, en það kemur allt saman;)
Rakel alltaf jafn trúlofuð. Líka með þennann risa hring á fingrinum. Ekki frá því að maður sé ponsu abbó!
Svo styttist í það að Helga og Stebbi krúttmús fara til Danmerkur. Maður á eftir að sakna þeirra SVOOOO:(
Túttan er búin að vera í íbúðarhugleiðingum síðan hún leit dagsins ljós á Landspítalanum. Loksins verður draumur hennar að veruleika, en þau Kalli eru að skoða málin. Þar er ég líka MJÖG öfundsjúk! Eins gott að maður verði boðinn í fínt innflutningspartý og stelpu-sleepover!
Heiða litla dúllan mín er að fara til Þýskalands á mánudaginn:-( Hún ætlar að læra þýskuna betur. Tsss eins og ÉG gæti ekki kennt henni;) Heiða, BITTE NIGHT VERLASSE:)
Rakel Arna skvísa er svo alltaf bara að farða fyrir Múlan Rús í Loftkastalanum. Stúlkan á framtíðina fyrir sér í þeim bransa.
Mía er alltaf með litla kútinum sínum í Norge. Mætti nú alveg fara að skila sér til baka.....
Svo eru það þær Anna kasp og Kristin sem eru spurngarmerki... dömurnar hafa afar hljótt um sig þessa dagana... mínir spæjarar segja þær hafa það bara ágætt, sem er gott að heyra....
Vonandi munu þið öll eiga yndislega helgi. Kossar og kynlíf...
Magga:)
Ein mynd svona í lokin fyrir þær sem vanta kúrifélaga, þetta reddar ykkur í bili... ENJOY
posted @ 5/27/2005 11:49:00 e.h.