myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 24, 2005



Um helgina skelltum við okkur í gelluferð uppí bústað.
Fimm okkar lögðum af stað uppúr sexleytið á föstudeginum.
Við Tútta vorum fljótlega hungraðar í pizzu (mmmmm) svo við töltuðum af stað til Hveragerðis.
Hittum bra-bra á leiðinni og tókum myndir af þeim ásamt því að taka nokkrar pósur sjálfar*trallalala* :-)
Við átum þessa æðislegu pizzu saman og drukkum könnu af kóki. Löbbuðum saddar og ánægðar út í nístingskuldann og hlupum á næstu bensínstöð. Því ekki ætluðu prinsessurnar að LABBA til baka! ónei (Þótt það taki innan við 10 mín).
Þar krækti Túttan í tvo ofur-gúmmítöffara og okkur var borgið.
Þeir skutluðu okkur uppí bústað. Ég hafði rembst við að segja EKKI húsnúmerið svo þeir gætu ekki komið á eftir okkur. En þá þarf ég endilega að gubba út úr mér hástöfum "hús 28". Ég er samt ekki með tourett eða neitt svoleiðis sko. Bara rugluð.
Þeir henda okkur út á planinu og heimta að fá að hafa samband við okkur seinna. Görguðu á eftir okkur "*eitthvað* haffi"... sem þeim þótti örugglega voða sniðugt. Rut er svo gáfuð að hún fattaði númerið. Seinna hringjum við í kauða til að fá upplýsingar um böll og svoleiðis. Notum óskráð númer og fake nöfn. Ég var Hrefna, Rutta Helena og Anna var Jónína:)
Hann kom og sótti okkur og sýndi okkur staði á Selfossi. Svo lá leiðin á Snúllabar í Hveragerði. Hallærislega nafn sem til er!!
Hann fór svo að spurja okkur hvað við værum að gera þarna og við sögðumst vera að fagna samræmdu prófunum. Sögðumst vera 15 ára og dúddinn trúði því!!! Hann sagði bara"ok ég hélt þið væruð svona tvítugar".... Ég var orðin ansi hrædd um að það kæmist upp um aldur okkar og líka þar sem ég kallaði Rut alltaf Rut en ekki Helenu. En þegar Rut datt svona glæsilega fram fyrir sig með bjórinn sinn, þá vissi ég að við værum hólpnar hvað aldurinn varðar! :-)
Þegar hann hafði blikkað sumar okkar og reynt að fá aðrar heim til sín þá fannst okkur að það væri kominn háttatími fyrir 15 ára stúlkur:)
Næsta dag fóru gellurnar í pottinn, allar NEMA ég, sem komst ekki vegna mánaðarlegrar tæknibilunar, svo ég var titlaður myndatökumaður... veiii:( :(
Eftir pottinn skelltum við okkur til Hveragerðis. Þar sló Rut í gegn í kellingarbúð. Hún lét þau orð detta úr munni sér um leið og hún labbaði út úr búðinni að þetta væri bara fyrir fertugar kellingar! Kúnni þarna, kona á fertugsaldri, heyrði í henni og endurtók hástöfum það sem hún sagði með fyrirlitningarsvip. Rut gekk í burtu og hún átti ekki til orð og spurði okkur hvaðan hún væri. Ég var ekki að bæta stöðuna með því að benda afgreiðslukellunni kurteisislega á að pilsið sem hún væri að selja á 4.200 kr fengist á aðeins 3.000 kall í bænum!
Við vorum ekki þær vinsælustu á svæðinu.
Þegar við gengum svo til baka framhjá þeim, þá voru þær ENN að hneykslast yfir þessu!
Við komum svo auga á ísbúð þarna hliðiná og keyptum einn kaldan á mann:-)
Meðan beðið var eftir Höllu og Önnu Kaspersen, fórum við og gerðum okkur fínar og sætar. Einnig lögðum við á borðið og gerðum matinn reddý fyrir grillið. Ég verð samt að viðurkenna að ég gerði nú lítið annað en að sitja með bjórinn minn og flétturnar mínar og horfði á:-)
Svo komu þær skvísur loksins og ég tilbúin með myndarvélina. Anna Helga ofurmamma tók að sér að elda óumbeðin. Það fékk enginn að koma NÁLÆGT grillinu á meðan. Greyjið
dúllan fékk ekki einusinni að borða í friði því hún var svo upptekin af því að dekra við okkur. Fær STÓRT hrós og knús fyrir það:-)

Svo kom nú að þessari blessuðu keppni. Allar völdu sér lönd til að halda með og drekka samhvæmt stigagjöf. Ég hélt víst með Svíþjóð af einhverjum óljósum ástæðum og endaði
bláedrú!
Rakel var jelly meistarinn að þessu sinni. Bjó til þessi ógó sterku rauðu jelly í plast skotglösum sem enginn gat mögulega borðar nema hún sjálf;)
Ég veit ekki einusinni hver vann eða hvernig sigurlagið var.... svo óhress var ég... þetta voru allt léleg lög og ekkert spennó að fylgjast með. Það er alltaf jafn gaman þegar ísland tekur þátt, þá situr maður eins og algert nörd, með íslenska fánann í annari og bjór í hinni... já eða bara bjór í báðum *hóst-hóst*.

Adda tók svo upp gítarinn góða og glamraði af líf og sál. Við hinar rauluðum með. Náttfatapartýin okkar standa líka alltaf fyrir sínu. Kojufyllerí og trúno... gerist ekki betra :-)


Það sem kom mér á óvart er það að bústaðirnir eru rosa nálægt hvor öðrum þarna. Sem er ekkert merkilegt nema það að nokkrar sem ég mun ekki nefna hér hlupu NAKTAR í kringum bústaðinn í síðustu ferð! Ég er ekki frá því að allt hverfið hafi orðið vitnin að því!
Sunnudagurinn fór í það að sofa út og taka til. Guðrún og Gunni komu að ná í Ruttuna sína. Júlía krúttmús fékk að koma með. Hún var í pínu lítilli bleikri kápu sem er BARA sætt.

Ég heimta að fara aftur í svona ferð. Hver vill vera memm????????????


posted @ 5/24/2005 02:08:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu