maí 02, 2005
Stelpur ég VERÐ að deila með ykkur þeirri lífsreynslu sem ég varð fyrir um daginn.
Þetta byrjaði þannig að ég ákveð að skella mér í ræktina. Mín er ekki búin að standa sig þar svo ég tók mig saman í andlitinu og dreif mig af stað. Hendi mér í fötin, set upp sólgleraugun, kveiki á tónlistinni og svo bara af stað. Dagurinn virtist ætla að vera góður og ég með bros á vör yfir dugnaði mínum.
Ég renn í hlað í sundlaug kópavogs. Stimpla mig inn og geng niður stigann.
Þegar ég opnaði dyrnar að kvennaklefanum þá blasir við mér ÓHUGNALEGASTA SJÓN sem ég hef á ÆVINNI MINNI SÉÐ!!!!
....... Anna Jeves enskukennari stóoð þarna NAKIN í öllu sínu veldi!!! :o :o
Greyið ég sá öll herlegheitin og ég get sagt ykkur það að ég orkaði ekki mikið á hlaupabrettinu þar sem ég var ekki alveg búin að jafna mig....
Það er ekkert jafn *creepy* að sjá kennarann sinn sem maður hafði mestu óbeit á NAKIN!!
Þarna stóð hún og gaf mér illt auga... just like the old times, nema að þessu sinni var hún "aðeins" berskjaldaðri en ég....
En maður hefur nú séð kennarana sína gera ýmsa hluti sem voru ekki ætlaðir fyrir nemendur að sjá. Svavar þýskukennari var MJÖG duglegur að bakka á hurðir, og í eitt skipti prumpaði kallinn meðan hann laumaðist aftast í stofuna... ég heyrði það og öskraði á Önnu Helgu *"ógeð"* !!
Hún bara "þetta var EKKI ég"! Nei, gengur ekki Svavar framhjá eins og epli í framan! HAHAHAHA
En ég ber mikla virðingu fyrir honum samt sem áður. Án hans hefðum við Halla aldrei náð þýskunni sem við tókum í sumarskólanum... hann lét okkur hafa gemsanúmerið, heimasímann OG E-mailið sitt. Hann var orðinn ANSI leiður á því að fá okkur ár eftir ár, svo hann sagði okkur að hringja í sig tveim dögum fyrir próf því þá væri hann búinn að gera prófið og lét okkur vita hvað við áttum að leggja "áherslu" á:):) Ég slefaði samt bara með rétt um 5, en Halla mín... segjum bara sem svo að hún komst í gegnum þetta því hún er svo sæt;);) Já hann gerði ALLT til að losna við okkur... *muhahahaha* Eitt skiptið í sögu fengum við Halla bara 7 fyrir skrambi góða ritgerð. Við ekki sáttar og sögðum að þetta væri ritgerð uppá allavegana 9! Hann gaf okkur þá 8,5 án þess að hika:):)
Ég minnist einnig dönskutímana okkar í denn. Með 70 ára gamlann kennara, sem gekk í grænum sokkabuxum og engum brjóstarhaldara! Það var sannkallað kodac-moment þegar hneppti kjóllinn OPNAÐIST fyir framan bekkinn!! Efast ekki um að margir séu á geðdeild eftir þá sýn.....
Ohh ég er ekki frá því að ég sakni bara frammhaldskólans... hélt ég myndi aldrei láta þessi orð falla úr munni mér...
Ingvi frændi, sögukennari með meiru er mesti snillingur sem uppi er. Allavegana meðal kennarastéttarinnar *hóst-hóst*
Kallinn gat látið dæluna ganga langt fram á frímínútur, en samt elskuðu hann allir:) Enda eini kennarinn sem viðurkenndi að sofandi nemendur séu betri en hinir vakandi því þá er alger friður frá þeim:) Kallaði mig alltaf Perluna sína, því Margrét þýðir víst perla. Það gat verið PRETTY embarrassing!!
Ég þakka Guði að hafa ekki valið frönsku. Þið stelpurnar sem völdið það eruð eflaust í þvílíku formi eftir allar armbeyjurnar sem þið geruð fyrir framan bekkinn eftir að hafa komið 2 mínútum of seint! *hahahaha*
Tvær okkar, nefni engin nöfn, mættu eitt skiptið kol-ölvaðar í fjölmiðlafræði og voru með skandal aftast í stofunni:) Arndís og Hulda, your secret is safe with me! *bwahahaha)
Ég ætla rétt að vona að háskólinn sé ekki OF snobbaður staður og að við Anna Helga eigum eftir að eiga okkar móment þar!;)
Later...
posted @ 5/02/2005 05:27:00 f.h.