myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 14, 2005



*geisp*
Æ já það er erfitt að vera svona duglegur í vinnunni... tekur á...
Þetta skítaveður sem er vonandi ekki komið til að vera. Leggst illa í landann. Fólk er óttalega óþreyjufullt á því að bara BÍÐA eftir sumrinu... sem tæknilega séð er löngu komið. Við stöllur höfðum planað skemmtilegt road-trip á morgun. Sálin sko að spila í Sjallanum! :-)
Ætluðum að leggja af stað uppúr hádegi til Akureyrar. Keyra um landið með bleiku derin okkar og Britney í botni... ömmm... eða eitthvað svoleiðis *hóst*hóst*!
Leiðin átti að liggja beint á Bautann eða einhvern fínan restaurant, borða og svo skella okkur inná kvennaklósett og mála okkur... við höfðum neflilega ekki hugsað það langt að redda gististað, þótt maður eigi slatta af góðum ættingjum þar á sama aldri sem eiga ÍBÚÐ :-)
Þá væri klukkan samt bara um 8 leytið. En eins sniðugar og við erum þá ætluðum við bara að pikka í einhver partýljón þarna og bora okkur í fyrirpartý. Já eða bara drekka á torginu...
Við ætluðum að vera á ballinu fram undir morgun og skella okkur í sund þá. Hressa okkur við og halda heim á leið... Já eða sofa í bílnum... Halla sagði að við gætum bara tuggið rítalín til að meika heimferðina... það var eitthvað ekki alveg að gera sig!!
EENNN það þýðir ekki að tala um það núna... too late! Í staðinn fer maður bara í bæinn. Háskólanemar að klára... hlýtur að koma eitthvað viturlegt uppúr þeim!
Svo er maður ný búinn að fara á ball með þessum gæjum svo "etta reddaðist" :-)
Við Halla höfðum planað fyrir partý heima hjá henni fyrir það ball. Fórum kvöldið áður og keyptum jelly, allar tegundir (mmmm). Keypum geggjuð klakaform og fl. Við gerðum vodga jelly, rosalega gott. Það voru gular stjörnur, rauð hjörtu og svo grænar stjörnur, en þær voru extra sterkar. Köllum þær Hulk-skot :-)
Halla hafði boðið vinnufólki, Helgu Þóru og Simma, en ég bara Önnu, Ruttu og Rakel örnu.
Vinnufélagar Höllu létu ekkert sjá sig og Rut og Rakel sögðust bara hitta okkur á Nasa. Anna Helga tók heldur ekki súludansinn sem ég hafði beðið eftir..... tsss....
Þarna sátum við fimm og lékum okkur með hlaupið og þömbuðum nokkra ískalda. Sem var nú bara gríðalegt fjör (",)
Hér er ég svo með tvær myndir. Frekar venjulegar myndir. Ef þið skoðið vel, þá sjáiði að hún Magga er að ELDA!!!!!!!!! (ok reyndar að elda með 8 stelpum or som'n og komin í bjórinn.... en samt að ELDA!!!) Nú vil ég ekki heyra fleiri brandara um soðnar pylsur og hrærð egg!! :-) :-)


posted @ 5/14/2005 09:21:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu