myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

maí 19, 2005



Góðan fimmtudag!

Sólin skín í gegnum vindinn svo það er fínt að sitja við gluggan í vinnunni. Ágætis sumarfílingur....

Allir eru í óðaönn að skipuleggja eurovision partý. Vinnugellurnar eru með tóma íbúð þar sem þær eru að fara að flytja og hafa keypt strandar veggfóður í partýbúðinni ásamt upplásinni sól og hvaðeina. Spáin lítur vel út yfir helgina og ekki skemmir fyrir að við höfum heitapott í bústaðinum!
Anna Helga er búin að kaupa plast-staupglös fyrir jelly-ið og helling af öðru sniðugu dóti. Halla kemur með leynigest... úúú spennó;);)

Á morgun ætlum við svo í bæinn, ég og da Austin chick... minni langar óttalega í sumarpils:) Leiðin mun liggja líka í Partýbúðina ódauðlegu þar sem fást ógó sæt BLEIK martiniglös! Þegar klukkan slær 17 má búast við að við verðum á leiðinni uppí sveit... JIBBÍÍÍÍ.... Annað hvort á Simba eða með Gunna, pabba ruttu. Simbi (eða græna eldflaugin) á það til þessa dagana að komast bara uppí 80 km/kls... já og drepa á sér í tíma og ótíma mér til mikillar skemmtunar. En ef það kynni að gerast þá er ég með tvær ljóshærðar gellur með mér til að ýta:-) Oohhh mig hlakkar til!!!

Ég er enginn forfallin eurovision freak, en ætla samt að kveikja á sjónvarpinu hérna í vinnunni til að horfa á undankeppnina. Bara svona til að vera memm. Hræðilegir búningarnir á greyið crewinu okkar! Rauðar hjólabuxur eru eitthvað ekki að gera sig 2005.

Later spater....


posted @ 5/19/2005 05:39:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu