apríl 21, 2005
Sumarið er komið.... jibbííí....
Það er samt ansi kuldalegt úti og ég fæ léttan hroll þegar ég lít út um gluggann. Vonandi batnar það fljótt. Ég er svo mikil sumarstelpa. Veit ekkert skemmtilegra en að rúnta með sólgrleraugu og ís í góðra vina hópi á fallegu sumarkvöldi:) híhíhí
Við systurnar verðum sennilega að vinna saman þar sem Rakel ætlar sótti um fullt starf. Það verður bara stuð. Svo er hún að dansa í Loftkastalanum í Múlan Rús þess á milli... tss ekki á ég svona spennandi líf...
Við Anna Helga erum búnar að vera límdar saman síðustu daga... skelltum okkur í göngutúr uppí Heiðmörk á mánudag OG þriðjudag, óttalega duglegar:)
Í gær skelltum við okkur á Caruso, rosalega cosý stað og fengum okkur pizzu saman. Maður verður nú að vera góður við vinkonur sínar svona rétt eftir að þær splitta við kallinn:) Þótt ég sé voðalega leið fyrir þeirra hönd þá er samt gaman að endurheimta gömlu og góðu stundirnar þegar strákar voru ekki númer eitt tvö og þrjú:)
Við kíktum aðeins inn á Pravda, Hressó, Sólon, Glaumbar og Ara. Þó nokkuð afrek svona þegar maður er bara edrú, thíhíhí
Inná Glaumbar voru krakkar að dimmitera, MR held ég alveg örugglega...
oooohhh það minnir mig bara á okkur bíflugurnar blind fullar á hádegi í miðbænum. Það var æði...
Smá skoðanakönnun í gangi hérna... hvort á maður að skella sér á Jet Black Joe á Gaukinum eða Sálina á Nasa þann 7 maí???? Eða þekkir einhver svona "insider" til að fá færða aðra tónleikana!?! Ég missi alltaf af sálarböllum með ykkur kvikindin ykkar svo það er eins gott að þið komið með mér núna :) :)
Svo var ég að spá hvort ykkur langaði að hafa eitthvað asnalegt þema á laugardaginn? Hattaþema eða eitthvað...?? Svo er skylda að koma með myndavél :p
*Later*
posted @ 4/21/2005 09:02:00 f.h.