apríl 24, 2005
Nú fara skólarnir bráðum að klárast sem þýðir bara eitt: allir í prófum og enginn til að leika við greyið mig!! Sem BETUR fer er hún Halla líka vinna bara, og reyndar nokkrar í viðbót, en einhverra hluta vegna hittir maður þær aðeins í partýum eða hóp-hittingi. Það mætti alveg breytast...
Á föstudaginn fór ég ásamt Ruttu og Önnu Helgu á "konukvöld" á Sólon. Ég kýs að kalla það frekar STELPUKVÖLD þar sem ég vill meina að ég sé stelpa ennþá... engin KONA! *ttsss*
Ég ætla að vera stelpa þar til ég verð þrítug! punktur!
Anyways, við mættum á staðinn og tekið var á móti okkur með rósum. Svo settumst þarna við lítið borð sem búið var að skreyta með bleikum dúkum og rósum. Einnig var þarna grænmetis og jarðaberjaskál. Frítt á barinn og berir gæjar (sem voru þó ekki eldri en 17 ára) sem sáu um að hvítvínsglösin okkar voru alltaf full. Ég er ekki frá því að Anna horfði á glösin okkar með öfundaraugum. "Nei, ég ætla EKKI að drekka"... gellan sá svo eftir því að hafa komið á bíl þegar hún sá opinn bar!! hehehe
Dávaldurinn kom og dáleiddi eina frá FM. Svo var undirfatasýning frá La Senza. Ekkert smá flott undirföt!! Enda leggur maður oftar en ekki leið sína í þá búð!:)
Þegar leið undir lokin birtust nokkrar sem sýndu okkur magadans og héldu uppi smá suðrænum fíling.
Kristín kom og hitti okkur og leiðin lá á Pravda. Stoppuðum þar bara stutt og fórum síðan heim.
Í gærkvöldi var svo sing-star partý hjá Önnu. Hún bauð uppá bollu sem ÉG SNERTI EKKI!!! :) Eruði ekki stolt?? :-)
Hélt mig bara við Létt bjórana mína:)
Það varð ekki mikið úr bæjarferðinni. Kíkti á Dubliners (don't ask!) í mestalagi 15 mínútur. Svo fórum við á Sólon og Ara og svo beint HEIM! Ég er ekki frá því að hætta bara að fara í bæinn.... miklu skemmtilegra að vera bara í heimapartýi í góðra vina hópi:)
Ég vaknaði eldhress í morgun ... (ok kl.13 *hóst-hóst*). Við Halla og Helga Þóra fórum áðan útá Álftarnes og skokkuðum ... nei wow enginn trúir því hvort sem er... við löbbuðum um í svona þrjú korter. Rosalega frískandi.
Þegar ég kom heim þá mætti ég minni verstu martröð... litla sys var að fá hamstur. Þetta eru ógeðslegustu dýr sem ég veit um (fyrir utan ketti!!)... þau narta í allt sem kjafti kemur og eru ekki til neins að hafa á heimilum. Með fullri virðingu samt fyrir hamsta og kattareigendum:)
....næturvaktirnar byrja annaðkvöld og til að geta sofið sem lengst á morgun þá ætlum við Anna að hittast um miðnætti eftir vinnu hjá henni og klára að horfa á Shrek:) Læt mig dreyma um nammiát með þar sem skvísan vinnur í sjoppu... *namminamm*
Helga er í Danmörku núna og hefur ekki hitt mann leeennggiii.... fór reyndar bara í gær út, en það er annað mál:p
Hef ekki hugmynd hvað hún er að gera þarna... fór með mömmu sinni og systur hennar. Vonandi verður hún ekkert lengi því ég er komin með létt fráhvarfseinkenni....
Jæja mín bíður hamstra-búra-þrif. Maður verður að vera góð stórasystir. *gubb*gubb*
Later....
posted @ 4/24/2005 09:08:00 e.h.