apríl 27, 2005
Jæja stelpur. Nú erum við komnar á barneignar aldur og ekki úr vegi að víkja að fara að íhuga nöfn á litlu krílin okkar ófæddu. Flestir sem ég þekki vilja að barnið þeirra fái nafn sem er ekki OF algengt. Ég er allavegana LÖÖÖNGU búin að ákveða hvað mín börn eiga að heita:)
Hér er ég með nokkrar uppástungur svona fyrir þær sem eru í vandræðum;)
Ok, ef það er stelpa þá....
Alvilda, Analía, Blíða,
Bóthildur, Dúfa, Eggrún,
Engilráð, Eðna, Frán,
Gefjun, Gjaflaug, Grélöð,
Gyðríður, Hákonía, Hlökk,
Högna, Indíana, Ketilríður,
Kládía, Kormlöð, Listalín,
Lukka, Magnúsína, Messíana,
Mildríður, Norma, Pamela,
Randalín, Sía, Síta, Skúlína,
Sólbrún eða Tala.
Já úrvalið er ekki af verri endanum:)
Nú ef það er lítill stráklingur þá....
Draupnir, Drengur, Dufgus,
Ebeneser, Eilífur, Engilbert,
Ferdínand, Fjólar, Flemming,
Gautrekur, Gyrðir, Hængur,
Hartmann, Hildiglúmur, Hjálmur,
Hlégestur, Hlöðmundur, Holgeir,
Hrærekur, Hrollaugur, Hrútur,
Húnröður, Jeremías, Jesper,
Kaleb, Kaprasíus, Kjallakur,
Kristall, Kveldúlfur, Leiðólfur,
Lýtingur, Muggur, Mýrkjartan,
Röðull, Saxi, Skúta, Smiður,
Tístran, Ulrich, Valentínus,
Vopni og Vörður.
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Þetta eru ANSI óvenuleg nöfn en fólk accually er að skíra litlu englana sína þessu.
Högna finnst mér samt sætt þar sem vinkona systur minnar ber það með stæl. Analía... NEI... les það alltaf sem ANAL-ía sem er ekki að gera sig. Sama með Listalín... lis-STALÍN... Glyðríður er obboslega druslulegt eitthvað... finnst ykkur ekki? Skúlína er BARA fyndið *bwahahaha*
Hildiglúmur og Mýrkjartann standa uppúr hjá strákanöfnunum. Þetta eru HRYLLILEGUSTU nöfn sem ég hef heyrt. Ég vona að ENGINN sem ber þessi nöfn lesi þetta *krossaputta*
Ulric... einhver forfallinn Metallica-fan sem er að verða pabbi í fyrsta skiptið GÆTI slysast til að nefna litla strákinn sinn þetta... lets nope not... og Kaleb, svona svolítill O.C fílingur hérna... Sama með Vopni... er það ekki íslenska þýðingin af myndinni Blade?
Einn lítill kútur gæti samhvæmt mannanafnanefnd hlotið nafnið "Jeremías Hrútur"...
Hvað er fólk að SPÁ???
Mín börn munu fá FALLEG nöfn sem eru löngu útpæld... vonandi fer pabbinn ekki að klúðra því með einhverju hallæris eftirnafni eins og Flemming eða eitthvað... hehehehe
Nei þótt ég sé að gera grín að mannanöfnum þá er það samt ekki persónuleg árás á einn eða neitt. Bara gaman að leiða hugann að því sem fólki þettur í hug:):)
*knúsknúsogbæ*
posted @ 4/27/2005 03:33:00 f.h.