apríl 16, 2005
Jesús hvað tíminn er fljótur að líða!
Ég sit hérna í móttökunni á Grand Hótel og horfi út á þetta BRJÁLAÐA veður. Það var búið að vera svo gott hingað til. Vorið kemur bara með látum.. össs
Í gær fór ég til Önnu Helgu. Planið var að horfa á Ungfrú Reykjavík yfir snakkskál og kók.
Við fórum í sjoppuna og gjörsamlega HÖMSTRUÐUM.
Keyptum okkur ís, pepsí, snakk, súkkulaði og fl.
Ég meina, ef við fitubollurnar getum hvort eð er ekki haldið okkur í svona formi eins og stelpurnar á skjánum, þá megum við alveg borða nammi í staðinn!! Er þaggi? :)
Niiii við ætlum að verða alveg jafn flottar sko! Sumarið að koma með öllum sínum göngutúrum og skokkferðum.
En allavegana, þarna lágum við eins og klessur. Við þurftum bakka undir allt dóteríið. Markmiðið var að geta hreyft sig sem minnst og borða sem mest:)
Keppnin fór svo eins og við var að búast. Unnur dóttir Unnar Steinsson hampaði titlinum....
Klíkuskapur segja einhverjir... en ég er ekki frá því að daman átti þetta bara skilið. Bráðmyndarleg stúlka. Maður sá vott af öfundsýki í augum hinna þegar úrslitin voru kunn.
En svona er þetta...
Eftir keppnina horfðum við á Shrek. BARA snilld!
Þeir sem hafa ekki skráð sig í bústaðar-eurovision partýið okkar gjöra svo vel að gera það NÚNA á síðunni okkar sameiginlegu!!
Ætlar þú Anna að leygja þriðja bústaðinn??
Það yrði geggjað að hafa lítið þorp útaf fyrir okkur. Ég vil sjá Kristínu, Rakel og þið hinar hlaupa aftur naktar um skóginn!! hahahaha... Pant ekki vera með samt;)
Jæja best að fara að vinna....
posted @ 4/16/2005 08:24:00 f.h.