apríl 11, 2005
Hæ ég heiti Margrét og ég er vitleysingur.
Bókstaflega sko....
Ég hélt uppá afmælið mitt á laugardagskvöldið ásamt Rakel Mjöll og Helgu.
Það var rosalega gaman... alveg til klukkan ellefu. Þá var minni hent heim.
Krakkarnir fóru að tínast heim til mín uppúr hálf sjö. Það var Hollywood þema í gangi, sem reyndar ekki allir fóru eftir:) Ég var Tinkerbell, Helga Cat woman, Hulda Cleopatra, Krissi Jack sjóræningi, Rut Kill Bill gellan og svo framvegis.
Við gerðum snittur og fleira í þeim dúr og skreyttum ofsa flott. Helga gerði þessa töfra bollu sem allir gátu þamað en var samt alltof áfeng... en það kom ekki í ljós fyrren seinna:)
Mín var mönuð upp í staupkeppni, þambkeppni og bara name it.
Við fórum svo í bæinn um hálf tíu. Bjarki og Hafdís voru svo elskuleg að skutla okkur Höllu.
Þegar við komum á staðinn var Rakel Mjöll búin að hengja upp borðann og setja snakk og svona í skálar. Geggjað næs.
Þar var ágætis stemming. Fólk að koma sé í gírinn og svona.
Um hálf ellefu varð ég veik uppúr þurru! Án gríns... hehehe
Sat eins og hálfviti uppá borði, algerlega rænulaus.
Rut og stelpurnar voru að troða í mig vatni sem ég hafði auðvitað ENGA lyst á.
Hulda Rut og Krissi komu mér heim... algerir bjargvættir.
Já það er ekkert gaman að MISSA af mans eigin partýi. Var með trilljón sms næsta morgun frá fólki sem ætlaði að hitta mig!! Glatað!!
En þið sem þekkið mig vel vitið að þetta er ENGANVEGINN líkt mér! Ég er rosa góð stelpa:) Er þaggi?? :):) híhíhíhí
Stelpur, svo þurfum við að fara að elta uppi næstar Sálarball!?!?! Látið mig vita ef þið sjáið eitthvað auglýst:) Er það ekki málið??
Þið sem eruð að vinna, hverær eru þið í sumarfríi? Þar sem ég VERÐ að taka frí þá ætla ég að hætta hérna miðjan Júlí og fá borgaðan uppsagnarfrestinn:) Þá förum við Halla á sama tíma og vonandi fleiri... sem þýðir BARA sveitaböll! *Jibbí*
Rugludallurinn kveður að sinni.
posted @ 4/11/2005 09:59:00 e.h.