apríl 01, 2005
Ég á afmæli í dag!!
Stelpan er orðin hvorki meira né minna en 22 ára!
Ykkur er öllum boðið í partý á Pravda 9. apr, en þá höldum við Helga uppá afmælin okkar saman. Nenntum ekki að kaupa kút... já ég veit, skamm við... en það verða tilboð á barnum og svona:)
Lífið er svo yndislegt... ég á yndislega vini og fjölskyldu... sumarið er að koma í öllu sínu veldi sem þýðir BARA roadtrip og böll:) "Í grænum laufskála" trallala.... kominn tími til að dusta rykið af söngtextunum okkar góðu stelpur:) híhíhí
Toppurinn á tilverunni verður samt sem áður sú staðreynd að ég og stelpa að nafni Halla Þórarins ætlum að stripplast um á bikiníum með margarítur í aðrari og vindil í hinni nákvæmlega
HÉR: Á flórída beibí..... !
Ég er búin að láta mig dreyma um að fara í Disney world frá því ég man eftir mér! Þarna munum við sko heldur betur lifa okkur inní draumaheim!!
Svo sá ég þetta mér til mikillar gleði... það er hægt að eiga ævintýralegt brúðkaup þarna í Disney World! Það værii GEGGJAÐ að gifta sig þarna!! Það er eitthvað sem ég leyfi mér ekki einusinni að dreyma um! Umhverfið rosalega rómantískt. Veislan gæti verið í einhverjum garði þarna, lokaður af undir berum himni. Danskleikurinn kannski í Höllinni hennar öskubusku!!
WOW það tók mig nokkrar mínútur að jafna mig...
En sjáiði myndina... þetta er ALVEG eins og í ævintýrunum...
En back to the real life... ég var að vinna EIN síðustu nótt því við lánuðum næturvörðinn okkar.
Sem betur fer fékk ég góðan gest. Hana Ruttu.
Við fengum okkur pizzu, kók og ís. Svo var bara hangið í tölvunni. Óli frændi kom svo líka að setja upp eitthvað tæknidót hérna... endaði með því að hann hékk hjá mér til næstum 5:) Sem ég var auðvitað himinlifandi með svo ég yrði ekki ein:) Því ég er rosalega myrkfælin. Ég ýminda mér alltaf að það séu draugar flakkandi um hótelið því það eru allskonar aukahljóð í húsinu.
Ég veit... vottur um geðveiki... hehehehe
Þetta er ekki beint skemmtilegasti afmælisdagur í heimi. Vinna um nóttina og SOFA allann daginn. Ég á að vakna um 4 til að farða múttu. Þau eru að fara á árshátíð. Svo fer ég að vinna attur kl. 8:(
Halla skvísípæ ætlaði að heimsækja mig samt áður:):)
Það er eins gott að þið verðið góð við mig í næstu viku stelpur!! Ég hef ekki hitt ykkur í laangann tíma...
*Kiss kiss og útaf*
posted @ 4/01/2005 11:23:00 e.h.