myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 18, 2005



Undur og stórmerki!!
Ég varð vitni af atburði sem ég bjóst ekki við að sjá á minni lífstíð! Kvöldið byrjaði þannig að Rakel, Fannar og vinur hans komu og sóttu mig. Leiðin lá heim til tvíburana. Þar sátum við inní kompu í blokkinni þeirra, sem búðið er að breyta í partýpleis og drukkum. Halla hringdi í mig og sagðist ætla að fara niðrí bæ. Ég bara ok, hún hefur neflilega alveg kíkt edrú þangað. Þegar ég spyr hana um far, þá segist hún ekki vera að keyra því hún væri að drekka! Ég kafnaði næstum því á bjórnum. Fékk að melta þetta í nokkrar mínútur og spurði svo hvort ég hafði heyrt rétt. Já hún Halla var á leiðinni á DJAMMIÐ!
Þar næst lá leiðin í bæinn. Við fórum á Sólon til að byrja með. Þar koma þær Halla og Helga þóra, greinilega í glasi og tekin voru nokkur létt spor með Britney. Rakel og Heiða nældu sér strax í hözzl. Skildu mig eftir hjá Fannari og Viktori sem voru eiturhressir að vanda.
Ég hitti Höllu og Helgu aftur seinna og við fórum á Viktor. Þar gerði englabarnið hún Halla soldið sem ég bjóst ALDREI við af henni. Nældi sér í gæja og kyssti hann! :O En uss, það er leyndó :#
Einnig fór hún á klósettið með ókunnugri stelpu sem reyndið að kyssa hana líka, en það er önnur ella:)
Þetta var bara ágætis djamm í heidina litið. Vonandi endurtökum við þetta aftur skvísur?!? Og bannað að stinga af með einhverjum sætum heimskum gæjum sem vilja bara það eitt að....!! :@
En núna er allt ömurlegt hjá mér! Ég er búin að vera veik síðan á miðvikudag. Hélt ég væri með pestina. Nei ekki aldeilis. Mín er komin með stepptakokka. Á að vera heima og jappla á pensilíni. Ekkert gaman. Ég ætlaði að sjá Múlan Rús í gær hjá FG þar sem systir mín er að dansa. Svo er risa Idol partý á morgun. Rakel ætlaði að ath hvort ég mætti koma með sér. Það hefði verið hörkufjör. Svo er þetta einnig vinnuhelgin mín. Ég ætti að vera að vinna fös, lau og sunnudag. Sem mér finnst líka svona asskoti fínt. En ég þurfti að hringja eins og hálfviti og segja að ég kemst ekki neitt. Svo að hellingur að ske, en ég þarf að HANGA HEIMA undir sæng!!! Ég er ekki sátt!!!!!!!
Svo var Anna Helga að koma með þessar breaking news: hún og Silli eru hætt saman. Ég spyr bara, hvert er heimurinn að fara?? Það er ekki nóg að ég er sú allra versta í karlamálum hér, heldur þá er fólk sem er búið að vera saman lengi að hætta því. Já mér líst bara ekkert á blikuna. Strákar eru svo óþroskaðir að hálfa væri nóg. Hann hætti með henni því hann vildi vera EINN. Það veit hver stelpa að það er bara enn ein tylliástæðan. Það býr eitthvað miklu stærra að baki sem hann bara höndlaði ekki að segja. Ef allir strákar myndu hugsa eins og stelpur, þá væri heimurinn miklu betri:) ....... jú víst!! Ég er alls ekki þessi kvenréttindakona. Þvert á móti. Ég held að strákar séu það fallegasta og sætasta sem til er. Það virðist bara vanta eitthvað í þá svo þeir "passi" við stelpur. Þeir einfalda alla tilfinningar til að sleppa við að díla við þær. Stærsta spurningin sem brennur á vörum mér er "hvers vegna tolla strákar svona illa í samböndum"? Gæti verið vegna þess að við stelpur kúgum þá svona rosalega að þeir bara VERÐA að sleppa? Ég held samt eftir að hafa horft á hvernig farið hefur fyrir sumum vinkonum mínum, að strákar séu einfaldlega of "veikbyggðir" til að geta haldist í sambandi. Þurfa alltaf að finna lame ástæðu til að "komast út". Þessvegna segi ég, Anna Helga, einbeittu þér bara að því sem ÞÚ ert að gera. Strákar koma og fara. Þess vegna er ekki gott að hengja sig á eina manneskju sem maður trúir að muni "bjarga öllu". Hver veit nema Silli komi aftur til þín eftir að hann hefur verið einn i nokkurn tíma og grátbiðji þig að taka sig aftur. Kannski viltu hann bara ekkert þá! Ég man þegar Rakel Arna hætti með Ingvari. Þá átti þessi lína vel við: "Loos a guy, get a car!!" Já, það kemur alltaf annað í staðinn. Sjáðu bara til.
Ég meina í versta tilfelli þá förum við saman á nokkur háskóladjömm með læknanemum:) hehehe
Svo minni ég einnig á pókerkvöldin okkar. Hver á að halda næst stelpur??
****
*Veika stelpan kveður að sinni*


posted @ 3/18/2005 04:12:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu