mars 01, 2005
Sætar í Ameríku:)
Laugardagurinn var hinn skrautlegasti.
Heiða kom til mín uppúr kvöldmatarleitið og við gerðum okkur klárar. Drukkum Armaretto og svo bjór sem er já.... ekki seldur í búðum.... lalalala
Þegar klukkan var að ganga 21 þá skutlar mútta okkur niður á Kaffi Austurstræti í afmælið hans Stebba og Bjarna. Þar var fríður flokkur karlmanna ásamt Helgu skvís sem var í annarlegu ástandi. Þau skötuhjúin höfðu farið út að borða áður og það dugði ekkert minna en limmi til að skutla þeim.
Þarna var vel tekið á móti manni. Siggi alltaf með opna arma og Geiri tilbúinn að klípa í rassa. Yndislegt alveg.
Við fengum bjór og staup í boði afmælisbarnanna. Rut hringdi svo stuttu síðar og vildi koma með. Hún var ekki lengi á leiðinni. Eftir slatta af Guns N'Roses lögum hlupum við Rut yfir á Subway og keyptum kökur. Ekki spurja mig hversvegna, Rut langaði allt í einu í kökur...
Eftir afmælið fórum við á Sólon. Þar tók Óli frændi við okkur með bros á vör.
Eftir aðeins nokkra snúninga þar þá tókum við Rut eftir því að við vorum einar eftir. Hinir voru horfnir. Ég hringi í Heiðu og þá hafði hún stolist á Gaukinn. Ég þangað.
Þar hittumst við öll attur, en Ruttan fór heim:(
Mér til mikillar ánægju hitti ég HAFDÍSI elskuna mína. Loksins fengum við að djamma saman. Hún var með sínum heittelskaða. Rosa sæt.
Þar inni hitti ég einnig slatta af krökkum úr FG... sem eru NÚNA í FG... ok þetta var allt vinir litlabróður míns! :@ Ég ætla ALDREI aftur þangað inn!!
Við kíktum aðeins á Glaumbar, en við Heiða fórum fljótlega aftur á Sólon. Þar gaf Láki fyllibyttunum vatnsglös. Tókum einn rúnt með einhverri stelpu sem ég þekki ekkert, en þegar Heiða fékk sms frá draumaprisinum þá fórum við auðvitað að hitta hann:) Þeir vinirnir fóru á Hverfis.Við eltum auðvitað eins og skuggar. Strákarnir voru síðan svo elskulegir að skutla okkur heim.
Svona ein pæling í lokin... hvað er málið með að láta mann vaka til að horfa á Óskarinn og sýna ekki BRAD PITT?!? Það sást bara EKKERT í hr. fullkominn! Ok hann var ekkert tilnefndur, en hann er þó það fallegur að mér finnst allt í lagi að allavegana láta vélina rúlla í áttina til hans:) Hann hlýtur að hafa farið með ungfrú Aniston. Hún gæti hafa verið í flottum kjól sem hægt væri að sýna... jah maður spyr sig....
posted @ 3/01/2005 01:34:00 f.h.