myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 07, 2005



Sæl þið
Það sem er helst í fréttum er:
Rut frelsaðist úr læknisfræðinni. Daman sú fékk að "frysta" námið sitt eða eitthvað svoleiðis. Þá vonandi fæ ég að hitta hana oftar:) Skref #1 er að fara saman í ræktina í fyrramálið:)
Svo átti Stebbi litli nokkur afmæli 5 mars. Stákurinn er orðinn 21 árs. Ári yngri en ms. Stebbi. thíhíhíhí
Ég er komin í VIKUFRÍ! -gerist ekki betra;)
Sander beibí sendi Möggunni sms frá Hollandi. Baðst afsökunar á hegðun sinni og sagðist ekki vilja missa sambandið við mig. Sambandið sem við áttum hefði verið of "sérstakt" til að missa þráðinn:) Hann er reyndar á föstu núna. Aldrei myndi ég vera sátt við að minn kall væri að tala við sína "fyrrverandi" á þessum nótum. Muhahaha ....
"strákar... tsss"
Næst á dagskrá hjá pókerklúbbnum okkar stelpnana er matarboð og Idolpartý. Við ætlum að hittast næsta föstudag hjá Höllu (as far as I know). Þrjár elda aðalréttinn, tvær eftirréttinn, tvær koma með meðlæti og svo frv. Ætlum síðan að horfa á Idolið. Dabbi datt reyndar út seinast. Gamall FG-ingur svo maður hélt að sjálfsögðu með honum;) Svo er auðvitað planið að SPILA. Ég kann ekki neitt í póker. Vonandi verðum við orðnar það fullar að við "gleymum" að spila:)
Ég lifi enn í voninni um að sjá ungfrú Höllu ölfaða. Svo virðist sem öll landsbyggðin hefur séð það NEMA ég!
Svo ætla ég líka að segja ykkur frá því að ég á yndislega mömmu.
Ég vaknaði þreytt og pirruð í fyrradag til að fara á næturvakt. Þá stóð þessi heljarinnar pakki fyrir framan rúmið mitt. Hún múttan mín hafði þá keypt handa mér nýja sæng og kodda:)
*Ég óska hér með eftir LEIKFÉLAGA fyrir alla næstu viku. Þið stelpur eruð svo busy, en gefið ykkur tíma til að eyða með ykkar yndislegu Möggu sem er í fríi ALLA næstu viku:)
*Einnig óska ég eftir stíllista. Ég er að fara á árshátíð hjá Grand Hotel 25 mars. Á HELLING af fötum og skartgripum. Nú vantar mig einhvern til að raða þessu smekklega saman fyrir mig. Einnig uppástungur um hárgreiðslur (",)
*Mig vantar reyndar einhvern til að taka til í herberginu mínu, þrífa bílinn minn og allt það... en ég skal taka skítaverkin ef þið getið hjálpað mér með hitt:)
Að lokum ætla ég að setja inn link, með voða sætum ástarljóðum http://www.lovepoemsandquotes.com/
Lov jú.. Magga


posted @ 3/07/2005 12:46:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu