mars 28, 2005
Skemmtilegasta helgin mín í laaannngannn tíma!!
Shit hvað það var GAMAN!!!
Það var semsagt haldin árshátíð Grand Hótels á föstudaginn. Við systurnar lögðum af stað uppúr hádegi með Britney Spears í græjunum;)
Þegar við vorum komnar á Hótel Örk, var tekið vel á móti okkur. Láki var eldhress að vanda, enda var hann ENNÞÁ fullur síðan daginn áður!! Don't ask....
Kokkarnir tóku okkur Rakel strax og við skreyttar með álpappír. Svo var farið í ratleik.
Við Hafdís helltumst strax úr lestinni, enda með opinn bjór og svona:)
Fórum í Eden og röltum eitthvað um. Hittum svo uppvaskarann (man ekki hvað hann heitir, sorrý) og þá komumst við að því að við værum þær EINU eftir í liðinu okkar! Hinir voru greinilega hættir eða eitthvað. Við töltum á stað til að reyna að gera EITTHVAÐ!!
Fljótlega var hringt í okkur og sagt að leikurinn væri löngu búinn... ooops....
Þá var komið að pokahlaupinu. Okkur var skipt í lið. Ég hljóp pokahlaup! Það er ekki eitthvað sem vinir mínir geta ýmindað sér að ég gæti:p Eru þið ekki stolt??? :D :D
Leikurinn endaði á að allir unnu og fengu öll liðin freyðivínsflösku, sem strákarnir þurftu endilega að hrista og hrista þangað til að hún sprakk... Eru það nú kokkar ?!?
Eftir leikina var komið að heita pottinum. Ég var orðin svolítið vel í því og þar sem fólk ætlaði að vera að drekka í pottinum þá fannst mér gáfulegast að slétta hárið á mér og mála mig aðeins áður en ég yrði OF drukkin til að gera mig sæta og fína fyrir matinn! Ég setti hárið vandlega upp í tagl og sat hálf uppúr pottinum, voða pen og fín. Hefði heldur betur mátt SLEPPA því!!!
Kemur Óðinn arkandi í sundskýlu og SOKKUM og hendir sér ofaní! Ég passaði að bleytast ekki og sötraði bjórinn minn í næði. Ég hefði mátt vita að strákarnir færu að slást eins og smákrakkar! Láki og Óðinn fara að kaffæra hvor öðrum. Láki er svo mikil skræfa að hann hendir MÉR, stelpu, fyrir framan sig til að verjast undan "the crazy chef". Óðinn kemur þá og hoppar ofan á mig og KAFFÆRIR MÉR!!! Sest ofan á mig og heldur mér í kafi!
Ég varð að sjálfsögðu brjáluð....
Næsta skref hjá strákunum, ásamt restinni af kokkunum var að henda öllum ofan í sem ekki voru í sundfötum. Þeir tóku fólk í röðum og hentu þeim í laugina.... sumir með síma og veski í vösunum.... þá fannst mér ég bara heppin að mér var "bara" drekkt :) Hélt sátt áfram að þamba bjórinn góða:)
(Láki ég á eftir að hefna mín big time!!! hahahaha)
Það voru partý í hverju herbergi. Ég tróð Guns N'roses í tækið, að sjálfsögðu:) Við blönduðum Armaretto með magic... besta drykk í heimi:)
Við Rakel tókum síðan einn billjard leik. Getiði hver vann?? :) :)
Loksins var komið að kvöldmatnum. Við stelpurnar máluðum okkur og gerðum okkar ofsa sætar:) Fórum upp og fengum fordrykk. Þar hittust allir í sínu fínasta og spjölluðu. Í matinn var reyndar ekki besta kjöt sem ég hef smakkað, en ég fékk TVO eftirrétti (ég hlít að vera svona feit eða eitthvað) þannig að ég var sátt... :) Það voru ekki mörg skemmtiatriði að þessu sinni. Þjónarnir voru með söng. Axel tók lagið og stelpurnar dilluðu sér fyrir aftan:) Við vorum bara 3 frá móttökunni þannig að við "nenntum" ekki að gera neitt. Ekki það að ég hefði verið til í að taka eitt stykki Britney, Guns'n roses eða Celin Dion-lag en það verður að bíða betri tíma:) ..... hahaha riiigghtt...
Kokkarnir tóku líka lagið. Voru allir í asnalegustu jökkunum sem ég hef á ævinni séð og sungu "flottur jakki". Einn þeirra *hóst*Beggi*hóst* sofnaði við matarborðið og gat því miður ekki verið með í því atriði.... HAHAHAHAHA
Svo kom að happdrættinu. Það voru svo margir vinningar að ég held að allir hafi unnið! Allavegana gekk það allt kvöldið og ALLIR á okkar borði unnu! Það voru 3 vinningar frá icelandexpress, tveir miðar fram og til baka og svo hótelgistingar út um allar trissur:)
Þeir sem sáu um að draga gátu ekki gert það lengur en í svona tíu mínútur hvor. Þeir voru svo drukknir að þeir bulluðu bara og kom næsti...... hehe algerir vitleysingar!
Síðan fór ég inn í fordrykk-stofuna. Hitti þar Magga kokk. Man að ég og Dóri kokkur ákváðum að
gera Magga "fínann" :) Ég tók rósarblöð og setti yfir hann meðan Dóri spreyjaði hálfum Love spell brúsa yfir hann!!! muhahahahaha Lets just say it was not preatty:)
En fjörið hélt áfram. Við fórum uppá næstu hæð þar sem ballið var að byrja. Þar var upphækkað svið þar sem við dönsuðum öll villt og galið. Ingó vildi kenna mér gömlu dansana sem er örugglega það eina sem kallinn kann:) Ég var víst ekki nógu góður dansari svo að Óðinn tók mig uppá arma sína (bókstaflega) og sveiflaði manni út um allt! Þegar dansinn var orðinn DOLDIÐ grófur að mínu mati þá forðaði ég mér í burtu.... drengurinn er neflilega harð giftur!
Eftir mikið og skemmtilegt ball förum við uppá herbergi í partý til Ragnheiðar. Sátum klesst í rúminu og fífluðumst eitthvað. Beggi var svo elskulegur að nudda mig í allaegana svona tuttugu mínútur og ég verð að segja að strákurinn er helv.. góður nuddari!
Bassaleikarinn úr hljómsveitinni kemur svo og heiðraði okkur með nærveru sinni. Ég fékk líka nudd frá honum:D
Hafdís og Kolla, móttökudömur með meiru áttu sér stocker þarna um kvöldið. Maður sem vinnur með okkur, eitthvað um fertugt elti þær út um allt. Biðjandi um að fá að sofa á milli hjá þeim! Hvað er að?? Og ekki nóg með það, þá elti bassaleikarinn mig uppá herbergi og vildi fá að "kúra"!!! Seriously, hvað er AÐ strákum í dag??
Sem betur fer kom Óli frændi til dyra og þá hélt hann að þetta væri kærastinn minn og dró sig til hliðar... hehehe.... en Óli greyið varð að gista með frænkum sínum í herbergi vegna tæknilegra örðuleika....
Næsta morgun nenntum við ekki í morgunmatinn. Sváfum til hádegis og fórum beint heim.
Ég verð að segja svona eftirá að hyggja að ég hef SJALDAN skemmt mér eins vel!
Þetta var bara snilldar ferð! Ég ætla að pína fólkið hérna að djamma meira saman:)
Á laugardaginn hittumst við stelpurnar, Helga Þ, Halla, Rut og Anna Helga. Við hittumst heima hjá Helgu og fengum okkur að borða saman. Svona "girl's night out". Svo er Britney sett á fóninn (Helga er að leigja með tveim hommum, það útskýrir eitthvað kannski) og við förum í einhverja drykkjuleiki. Við byrjuðum kannski einum OF snemma að drekka, því við vorum þarna rúllandi um gólfin í hláturskasti... svo verð ég að segja ykkur að hún Halla datt aftur fyrir sig... uppúr þurru!!!!! Við Anna Helga áttum líka að hafa duttið báðar fyrir framan spegilinn....
Við vorum orðnar svo ölvaðar að við vorum farnar að drekka Armaretto-ið á stút eins og það væri kók.... Ég kláraði meira en hálfa flösku EIN, svona RISA-stóra sem ég keypti í Ameríku!!
Össs.... eru það nú dömur...
Við örkuðum svo syngjandi í bæinn.... ég var víst með einhverja frekju... heimtaði að ráða ferðinni... bara svo þið vitið þá er ég VÍST skemmtileg á djamminu:) Ég var bara eitthvað í eigin heimi þarna... trallallalalala
Núna er ég komin aftur á hótelið á næturvaktir.... damn ég get ekki beðið eftir að komast í vikufrí:)
posted @ 3/28/2005 10:42:00 e.h.