myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 24, 2005



Ég var í beinni í Ameríku!! vúhúúúú....
Ég sit hér í makindum í vinnunni minni að HORFA á krakkana vinna. Það er lokað hótelið nema bara nokkrar fermingar í gangi. Ekki mín deild nottla þannig að ég fékk það skemmtilega verkefni að "passa" móttökuna. Veit ekki alveg afhverju þar sem það þjónar ENGUM tilgangi.
En ég var semsagt að bloggast eitthvað þegar síminn hringir. Það er einhver ameríkani og spyr hvort hann megi tala við mig um Ísland. Ég nottla bara já, thats my job! Svo er ég bara látin hlusta á hann kynna "Margrét, the icelandic girl". Nei þá var mín bara komin í einhvern amerískann útvarpsþátt sem sérhæfir sig í slúðri og fræga fólkinu! Svo koma allskyns spurningar um landið. Bláa Lónið og skemmtistaði. Svo sagði ég auðvitað að hér væru fallegustu stelpurnar;)
Í gær fór ég í partý til Heiðu eftir vinnu. Þar hittumst við gömlu smárabíó krakkarnir. Rifjað var upp gömul og góð prakkarastrik sem við framkvæmdum í vinnunni. Þau voru ANSI mörg:) Ég man td. þegar ég og Elísabet FÖLDUM okkur inní skápunum þegar mest var að gera. Sátum þar í makindum okkar með kók og horfðum á stelpurnar vinna í gegnum lítið gat:)
Good times, good times....
Einnig voru þarna fullt af box-gæjum sem eru að æfa með Heiðu. Ekki slæmt það:) Guns N'roses var svo AÐ SJÁLFSÖGÐU á fóninum.
Á morgun er ég svo að fara á árshátíðina hjá Grand Hóteli. Mæting er í hádeginu uppá Hótel Örk þar sem eitthvað prógram veður í gangi um daginn og svo hörkuball um kvöldið:)


posted @ 3/24/2005 03:47:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu