myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

mars 12, 2005



Ég hef verið asskoti löt að skrifa... það er bara búið að vera mikið að gerast og svona hjá manni. Nú er vikufríið mitt senn á enda. Ég er búin að liggja á kaffihúsum borgarinnar með mínum yndislegu vinkonum. Ég og Rut settumst niður á Grand Hótel á mánudaginn, eftir vakt og fengum okkur heitar eplakökur og súkkulaði. Nammi namm.... :)
Svo lá leið okkar í sautján þar sem við keyptum okkur þessa svaka pæju-leðurjakka.
Á fimmtudaginn var árshátíð hjá FG. Gamla skólanum. Ég fór reyndar ekki, enda orðin AÐEINS of gömul. Elma var með fyrirpartý sem mér tókst samt sem áður að troða mér í :) Við Heiða og Rutta fórum saman. Allar edrú. Ætluðum að vera góðar og vera driverar fyrir fólkið. Þar voru ekki margir, en við hittum samt Stifler! You know, American pie! Það hafði sprungið á dekkinu hjá stelpunum og þessi hjálpsami drengur komið þeim til hjálpar. Hann var ALVEG eins og Stifler!!!
Í gær, föstudag þá var eins og flestum er kunnugt Idol-úrslitin.Við stelpurnar hittumst allar og elduðu saman. Það var ansi skrautlegt þar sem eldamennska er ekki mín sterkasta hlið. Við vorum 9 saman. Óttalaga kósý að hittast svona allar :) Svo horfðum við á Idolið. Kusum auðvitað Hildi Völu! Döhh....
Rutta kom og þá færðist drykkjupartýið yfir til mín. Við sátum í stofunni og þömbuðum. Rakel kom svo eftir vinnu, en hún er Idol-sminkan. Málar allt liðið. Þarna sátum við að tala um Idolið, þegar engin önnur en Brynja úr Idolinu kemur í heimsókn. Rakel hafði dregið hana með sér. Gaman samt að fá Idol meðlim í Idol-partý til sín :)
En kvöldið var hið skrautlegasta. Við fórum á Gaukinn. Þar var Helgu hent út. Ekki útaf skilríki. Neeei, hún var að böggast í stafsmanni! Strákurinn hafði klipið í rassinn á henni og hún (skiljanlega) látið hann heyra það. Lætur ekki strák-kvikindið henda Helgu þá út!! Sagði svo við dyraverðina að hún ætti ekkert að koma inn aftur. Hvað er að spyr ég nú bara??? Ég hefði kýlt hann kaldann sko.... nei ok ég hefði örugglega bara heimtað fría bjóra eða eitthvað... lallalallalalla
Svo fórum við á Rex. Þar sá ég sæta flugþjóninn sem var að servera okkur Höllu á leiðinni til Minneappolis. Rut þarf þá endilega að fara til hans og spjalla. Segir honum að hann megi koma til okkar. Þegar hann var ekkert að koma, þá tekur hún sítrónusneið og HENDIR í gaurinn!! Hún small á andlitinu á honum, þá tekur hann hana og hendir til baka!! Ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta nokkuð fyndið þar sem þetta er svona rosa flottur og klassa maður í dýrum jakkafötum. Eftir þessa dýragarðsferð förum við á Sólon. Það var reyndar að loka og EKKI HRÆÐA inni. Lögðum jakkana frá okkur og fórum að dansa. Fyrr en varði sé ég heimska belju halda á jakkanum mínum. Ég arka til hennar og reyni að rífa hann af henni. Hún ríghélt og reyndi að kippa honum til sín. Ég settu upp gribbusvipinn og REIF hann af henni, Rut dúndraði í löpppina á henni og við förum. Muhahahaha ... hvað er að fólki að ræna fötunum mans!!?!!
Þegar við komum út, fer Rut að gefa símann minn... AGAIN!!
Ég vil endilega minna ykkur á að hún Rut hefur selt símanúmerið mitt OFT til að geta keypt drykki handa SÉR! Eitt skiptið seldi hún það fyrir 2000 kall!! Hún er ekki sú eina sem hefur gert það. Helga fékk einusinni 1000 kall fyrir það af einhverjum perra fyrir utan Óðal!! ojojoj stelpur þetta er ekki fyndið lengur!!!!!!!
Maður ætti samt kannski að stunda þetta, fá sér fake númer og bara selja hjá hvor annari?
Anyways... ég var að koma úr bænum með mömmu og Rakel. Löbbuðum Laugarveginn og keyptum árshátíðarkjól fyrir múttu. Það merkilegasta er það að ég keypti EKKERT. Ég er læknuð af kaupsýkinni! *jibbí*
Í kvöld verður frammhald af djamminu. Svona rétt áður en vinnan byrjar.
Seinna....


posted @ 3/12/2005 05:02:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu