febrúar 05, 2005
Sælt veri fólkið.
Í dag er mjög mikilvægur dagur. Akkurat í dag eru bara 5 DAGAR I AMERÍKU:) jibbí jei !!!
Nei ok, annars er ekkert merkilegt við þennan dag.
Ég á bara tvær næturvaktir eftir og þá er ég FRJÁLS eins og fuglinn:)
Talaði við Helgu í gærkvöldi og ætlaði að biðja hana að heimsækja mig uppá hótel en konan var sofnuð!! Ég er að tala um að það var föstudagskvöld og klukkan rétt um eittleytið. Bjóst svona stórlega við að gellar væri að djamma:)
En hún sagðist ætla að hitta mig eftir helgi áður en ég fer út:)
Já og Rakel A, þú verður að láta mig vita hvaða Dolce&Gabana veski ég á að kaupa! :)
Gaman gaman:) hehe
Það er ekkert að frétta svosem hjá mér, ekkert merkilegt allavegana.
Jú eitt: damn hvað íslensku flugmennirnir/þjónarnir eru HOT!!!
Kannski það sé bara uniformið, who knows;)
Þeir koma stundum með útlenska krúinu hingað.... hehe
Mía krútta ætlar víst að yfirgefa okkur núna á næstu dögum.
Við höfum ekki verið neitt sérlega duglegar að hittast allar. Ég veit að ég er með feitt samviskubit yfir því. Hún var hér svo stutt. Mér var búið að hlakka svo til að fá dúlluna en svo er maður bara alltaf að vinna eða gera eitthvað allt annað. Ég vona að við hinar dröttumst til að heimsækja hana fljótlega. Hún á það pínu skilið. Eru þið ekki sammála??
En þetta er nóg í bili:)
Ég kveð að sinni.....
posted @ 2/05/2005 05:49:00 f.h.